Ég mæli með þessari síðu hér(hlekkur) en þarna getur þú séð öll Íslandsmet, bæði innan og utanhúss. Íslandsmet drengja 17/18 ára utanhúss í 60 metrum 7.17 sett af Óttari Jónssyni árið 2000, þá 17 ára gamall. Innanhússmetið á Sveinn Elías, sett árið 2007, þá 18 ára gamall, 6.92. Íslandsmetið í 100 metrum drengja utanhúss á svo Sveinn Elías, 10.73, sett í Hengelo árið 2007. Ekki er hlaupið 100 metra innanhúss hér á landi. Ert þú eitthvað að hlaupa 60 og 100 metrana?