Þó hljóðstyrkur sé tvöfaldaður við 10dB þá er rafmagnsnotkunin tvöfölduð við einungis 3dB. Margir rugla þessu saman og halda að tvöföld notkun á rafmagni hækki hljóðstyrkinn tvöfalt. Í raun þarf átta sinnum meiri rafmagnskraft til að tvöfalda hljóðstyrkinn. Þessvegna, er t..d. 100W gítarmagnari ekki nándar nærri því helmingi háværari en 50W magnari, heldur bara svolítið háværari… Það er mjög algengt að menn misskilji styrk magnara hvað hávaða varðar og mæla það útfrá Wöttum en það er algjör vitleysa.