Virðist núna, með fullri virðingu fyrir SeveN, þá eru Adios með miklu meiri breidd í hópnum. Meina Adios getur stillt upp svo fjölbreyttu liði og þeir eru samt sem áður þræl sterkir. Ég hef heyrt að Oddur sé að verða inactive í smá tíma, og hafa SeveN gefið það út að þeir geti ekki spilað við þá meðan Oddur verði ekki. Þetta er gott dæmi um muninn á liðunum. Seven menn þið verðið bara að sanka að ykkur fleiri gæðamönnum og sleppa þessum “avrage” sem þið eruð með alltof mikið af.