Ég hef oft lent í því að sjá margann manninn vera oft að rífa kjaft á public serverum, aðalega einn aðili sem þykist vera æðri en flest allir hinir. Kallar sig “kónginn” o.f.l, mér finnst það skyggja mjög mikið á það clan og þann spilara. Því hann er mjög góður en þykist einfaldlega bara ráða yfir servernum og bannar oft leikmanni að spila sín leikaðferð. Þetta fer í taugarnar á mér og mér finnst að clan-leaderinn eða liðsfélagar hans ættu að taka hann á teppið, því þetta er bara mikilmenskubrjálæði í þessu aðila. Sem ég held að flestir ættu að vita hver það er, og ég vill ekki nafngreina hann. En já ef clan-leaderinn, í því clani sem “kóngurinn” er í, vildi vera svo vænn um að biðja hann um að passa sig að vera ekki með óvirðingu gagnkvæmt slakari spilurum og þeim sem spila CoD öðruvisi en hann og að sína meðspilurum sínum í þessu litla samfélagi okkar virðingu.

Takk fyrir

Kv. Rafael