Fyrir nokkrum árum sá ég auglýst í sjónvarpsmarkaði sem þá var í sjónvarpinu, plastpoka sem föt og fleira var sett í og síðan var ryksuga notuð til að lofttæma pokann. Þannig átti að vera hægt að geyma fatnað og sængurföt í einhvern tíma.
Mig langar að vita hvort einhver kannast við svona ?
Hvar er hægt að nálgast þessa poka og virkar þetta ?
Mig vantar nefnilega góða lausn til að geyma sængur og kodda yfir veturinn í óupphituðum bústað. Það er svo leiðinlegt að koma að vori og finna fúkkalykt af sængunum.
Hjálp einhver !!!