Persónulega finnst mér mun skemmtilegra upp á útsýnið að gera að vera á lágþekju, mun betra útsýni. Ég hef verið að fljúga Cessnum og Socata vélum og mér finnst vængirnir á cessnunum hreinlega eyðileggja útsýnið allt of mikið, ég ætlaði ekki að trúa mínum eigin augum þegar ég fyrst flaug á lágþekju hvað útsýnið var miklu betra. Ég lærði á Cessnu 152 sem er bara mjög skemmtileg vél að læra á, auðvelt að lenda henni (enda sigursæl í lendingarkeppnunum) og fyrirgefur vel. Eftir á að hyggja var...