Kannski var ég ekki nógu nákvæm. Það var alls ekkert alvarlegt þegar pabbi meiddi Jóhannes, og það var ekki beinlínis að lemja, meira svona ýta í fastara lagi. 0g hann er ekki vanur því. Þetta var einstakt tilfelli. Svo er þetta venjulega allt í lagi… eða þannig, viðunandi frekar. Og mamma veit að pabbi er ekki alslæmur, þótt hann sé lélegur heimilisfaðir. Ég fyrir mig held að þau muni aldrei skilja, og mig langar ekki að skipta mér af, þetta eru bæði heilvita manneskjur. Þó pabbi sé...