Ég er sammála Bent að þetta voru algjörlega óviðeigandi ummæli um lagið hans og 7bergs “Má ég sparka”. Mér sýnist líka vera meiri metnaður í íslenskri hip hop-tónlist en almennt í sveitaballa poppinu. Þegar hann nefnir að lagið ykkar þjóni engum tilgangi fer ég að brosa með sjálfri mér og velta fyrir mér hinum mikla boðskap sem “Ertu þá farin?” átti að færa íslensku þjóðinni. Einar hefur greinilega ekkert vit á hip hop-tónlist og kemur þetta verst út fyrir hann sjálfan.