Sæl. Var að lesa yfir þessa ágætu grein og hef ekkert nema gott um hana að segja. En þessi Davíð sem þú nefnir, faðir Salómóns, konungur Gyðinga og sá sem fékk hugmyndina að Musteri Salómóns (Guð sagði honum að sonur hans ætti að byggja það), sá maður átti hring, sem Salómón fékk reyndar líka, mjög öflugan hring segja þeir. Á honum var sexhyrnd stjarna sem var mjög oft kennd við djöfulinn af einhverjum ástæðum, líklega því þeir feðgar voru taldir kalla til sín djöfla og drýsla til að vinna...