Yo, er með WoW installaðan á Vista lappanum mínum og málið er það að leikurinn höktar alveg svaðalega mikið á svona 10 sek fresti. Kemur alltaf svona smá hökt og svo verður leikurinn aftur venjulegur. Skjákortið er ekki vandamál og ekki heldur tölvan. Hún er glæný. Getur maður installað einhverju drasli til að láta þetta hætta? Þetta getur verið mjög pirrandi í instöncum og þannig.