Þeir ríkisvæddu Glitni í stað þess að láta hann bara pommsa. Mig grunar að það hafi verið gert í þeim ásetningi að bjarga íslenskum innistæðueigendum frá því að missa allt sitt. Síðan mánuðum seinna kemur í ljós þetta Icesave dótarí allt saman. En þeir semsagt eignuðust Icesave fyrirtækið og þar með allar skuldirnar þeirra líka. Í raun björguðu þeir engum nema eigendum bankanna.
Ég get ekki ýmindað mér neinar aðstæður þar sem clicking gæti mögulega komist nálægt því að teljast betra, en það er örugglega hægt að skrifa ritgerð um nytsemi keybindings.
Hún sagði víst eitthvað um hann Þráin Bertelsson (hún var á þingi með honum, fyrir Borgarahreyfinguna), að hann væri geðveikur og með Alzheimer eða eitthvað álíka. Síðan sagði hún seinna að hún hefði bara sagt þetta af umhyggju, hehehe
Heyrðu ég virðist hafa steingleymt að svara þér ! :P Annars ef þú ert búinn að setja upp Ubuntu, og grub þar vill ekki kannast við Gentoo þá grunar mig að það sé bara eitthvað fubar í því horninu. En mér fannst eins og þú værir að leita að þessari skipun; grub-install.
Frekar niðurdregið, fannst aðeins of mikið sett í það að gera bara grín að kreppunni. En endirinn sló mig alveg. Afskaplega fallegur. Ég felldi nærri því tár. Bætt við 31. desember 2009 - 23:35 Og já, gleðilegt nýtt ár allir saman.
Einhvern tíman heyrði ég að það væri bara hægt að selja erlenda seðla, þaes ekki klink. Annars ætti það ekki að vera mikið mál. Veit ekkert um opnunartímann. Stendur örugglega heimasíðum þeirra samt.
Hefur komið fyrir. Lagast yfirleitt af sjálfu sér en þú gætir prófað eftirfarandi ef þig langar: * Slökkva og kveikja á leiknum * Start > Run > “ipconfig /flushdns” * Restarta routernum * Restarta tölvunni * Eyða WTF og Interface möppunum * Repair.exe
Click 1 > Join Click 2 > Invite People to Join Click 3 > Select All Your Friends Click 4 > Send Invitations Click 5 > Dislike Button™ Minnir mig á South Park :P
Þetta finnst mér alveg æðisleg grein, flottar lýsingar maður. Ég hef persónulega ekki hlustað á þessa, en hinar.. öhm, tvær? Hef heyrt þær nokkrum sinnum og finnst þær alveg svakalega góðar.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..