Ég veit það ekki, ég hef nú ekki kynnt mér kínverska bragarhætti, en ég gæti vel trúað því að það væru alveg flóknar reglur þar líka. Mér dettur í fljótu bragði til hugar sonnettur, eru þær ekki ítalskar að uppruna? Þær eru allavega ekki íslenskar. Það eru nú alveg stuðlar í enskum bókmenntum, til dæmis, þótt að reglurnar séu ekki eins. Þær eru fjölbreytnari, frjálsari, ef svo mætti orða það. Gömlu íslensku hættirnir eru oft mjög háfleygir og má það nú alveg vera bæði kostur og galli. En ég...