Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

skuggi85
skuggi85 Notandi frá fornöld 40 ára karlmaður
3.796 stig

Re: PARKÓDÍN!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Nei nei alls ekki. Það er ekkert eigingjarnt að allir fái frelsi á meðan það skerðir ekki frelsi annarra. Það er sanngjarnasta stefnan því þá hafa allir frelsi. Takmarkanir segir þú. Ég bara get ekki skilið hvernig hægt er að réttlæta slíkar takmarkanir á fullorðnu fólki. Ef einhver er nógu vitlaus að eyðileggja líf sitt með slíku frelsi þá verður bara að hafa það. Það er óréttlætanlegt að skerða frelsi allra til þess að vernda suma. Hver er sinn gæfu smiður. Einstkalingurinn á að bera...

Re: Sjálfstæðisflokkur og Vinstri græna í stjórn!

í Deiglan fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Já ég styð alveg að kjósa einstaklinga. Mjög takmarkað vald sem við höfum í kosningunum. En finnst frekar asnalegt að meirihlutinn geti fengið ýmis völd bara af því þau rétt svo ná meirihluta. Því tel ég eðlilegast að t.d. ráðherrar endurspegli þjóðina að fullu eins og alþingi. Þá þarf ekki að spá í að fella eða mynda stjórnir eftir hverja einustu kosningar. Það verður bara ljóst hvernig þetta verður miða við niðurstöður kosninganna.

Re: PARKÓDÍN!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Farðu þá varlega með lyf. Ekkert réttlætir að stjórnvöld neyði slíkt yfir þig. En auðvitað er gott að kjósa það sjálfur og fá leiðbeiningar hjá læknum. Sjálfur hef ég notað þetta lyf í mörg ár og þarf ekki leiðbeiningu hjá lækni. Hvað réttlætir að stjórnvöld neyði slíka frelsisskerðingu yfir mig?

Re: PARKÓDÍN!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Já einmitt. Gott að þú sért búin að átta þig á þessu. :)

Re: PARKÓDÍN!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Það vegur mikið þegar maður er á lágum launum. Lyfseðlaskylda er frelsisskerðing af versta formi. Þarna er látt bitna á öllum vegna þess að minnihluti misnotar efnin. Ég myndi sjálfur áfram fara til læknis til þess að fá leiðbeiningar ef að lyfseðlaskylda myndi falla niður. Nema auðvitað þegar það eru lyf sem ég hef notað áður og veit að þau henta mér, t.d. Parkódín. Ef einhver misnotar þetta frelsi þá er það hans vandamál, ekki mitt.

Re: PARKÓDÍN!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Bíddu á sem samgt að banna það af því þú telur það vera betra fyrir mig að fara aðrar leiðir? Þetta ráð þitt útskýrir ekki frelsisskerðinguna. Með áfengið er ekki kjaftæði. Þetta er faraldur á Íslandi hversu margir eru með áfengisvandamál. Þær tölur sem ég hef heyrt eru á milli 10-15%. Ég hef aldrei séð slíkar tölur hjá verkjalyfjum.

Re: Vinátta, framhjáhald eða samsæri?

í Fræga fólkið fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Öll húðin er af Britney.. líka undir hálsmeninu. Öll húðin og hálsmenið eru af Britney myndinni. Ég tók það af Britney myndinni með því að skera nákvæmlega sama form og er á fötunum hjá Lauru Bush. Færði svo yfir. Svo já allt nema fötin er Britney.

Re: Sjálfstæðisflokkur og Vinstri græna í stjórn!

í Deiglan fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ekki yfir svæðum. Heldur yfir valdinu. Bara alveg eins og alþingi sjálft. Hver flokkur hefur áhrif þar eftir fjölda sæta. Hægt væri að skipta ráðherrastólunum eftir hlutföllum og dreifa þeim milli allra flokkanna.

Re: PARKÓDÍN!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ég er það ekki. Kann líka að tala og skrifa íslensku.

Re: PARKÓDÍN!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Virðist ekkert vera að breytast á næstunni. :/

Re: PARKÓDÍN!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Byssueign er svipuð í mörgum öðrum löndum t.d. Kanada og þar deyja aðeins tugir manna árlega. Byssueign er ekki vandamálið í Bna. Aukin harka er vandamálið, sérstaklega í fíkniefnastríðinu.

Re: PARKÓDÍN!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Meirihluti fullorðna nota áfengi sem vímugjafa. Ég veit ekki hvernig fólk þú þekkir en ég þekki ekki marga fullorðna sem kaupa áfengi aðeins til þess að drekka með matnum. Meirihluti þeirra kaupa áfengi meðal annars til þess að detta í það. En þarna erum við komin á sama svið og með fíkniefni. Sumir ráða við neysluna, aðrir ekki. Þú vilt að áfengi sé aðgengilegt svo að fólk geti notað það hóflega. Hvað í helvítinu gerir þig eða aðra svona merkilega að fá að ákveða fyrir mig hvað ég megi...

Re: PARKÓDÍN!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ég styð líka forvarnarfræðslu að fullu. Ég tel að fræðsla sé lykilinn að betra þjóðfélagi. Meðal annars með því að fræða fólk um fíkniefnin og muninn á milli þeirra. Hvetja til þess að nota þau ekki og ráðleggja þeim sem samt sem áður að fara þá leið hvaða efni sé best að halda sig frá. Í dag er sett öll ólögleg efni undir sama hatt. Þetta byrjar oft með smá fikti, t.d. að reykja hass. En málið er að um leið og einstaklingurinn er búinn að gera slíkt þá er hann búinn að brjóta ísinn. Hann er...

Re: PARKÓDÍN!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Hver segir að ég ætli ekki á þing? Maður má alveg væla líka.

Re: Misnotkun!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ég er ekki að segja að maður eigi að sleppa. Finnst bara að það eigi að dæma hvert dæmi fyrir sig í stað þess að henda öllum í fangelsi. Það gagnast ekkert að setja þann sem hefur nauðgað vegna geðsjúkdóms á sama stað og þjófa, skattsvikara…. Það á að takast á rót vandans í stað þess að láta blóðþorstann ráða og hafa það eitt í huga að hafa harðari refsingar.

Re: PARKÓDÍN!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Nicotine er svipað ávanabindandi en heróín. Og áfengi aðeins minna. Nú var ég líka að tala um öll fíkniefni en ekki bara heróín. Kannabis, LSD, E-pillur og mörg fleiri efni eru minna ávanabindandi en sígarettur/áfengi. Sígarettur eru í efsta flokknum yfir stig af fíkn. Af hverju heldur þú að það sé svona rosalega erfitt fyrir fólk að hætta því? Sígarettur eru meira ávanabindandi en lágmark helmingur ólöglegra fíkniefna, jafnvel 2/3 þeirra.

Re: PARKÓDÍN!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Aha veikur punktur. Drekkur þú áfengi? ;) Það er ekkert sem bendir til þess að það drepi mann að neyta vekjalyf hóflega. Áfengi hefur drepið MILLJÓNIR manna. Þó að sumir noti það hóflega þá gera það ekki allir. Lets face it, áfengi er löglegt á Íslandi aðallega til þess að nota sem vímugjafa. Það vegur mikið meira en að fólk geti fengið sér rauðvinsglas með matnum. Leiðinlegt að þurfa að endurtaka sig svo oft… En… Áfengi er líklegra til þess að drepa þig en kannabis, E-pillur, LSD og fleiri...

Re: PARKÓDÍN!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Það er aðeins öðruvísi þar sem þar erum við að tala um ósjálfráða ungmenni (er reyndar á móti því að það sé bannað 18-19 ára fólki að drekka). En parkódín var með aldurstakmörk áður en það var ákveðið að gera það lyfseðilsskyld. Því er ekki verið að vernda neina unglinga með nýju lögunum. Það er verið að vernda fullorðið fólk frá sjálfu sér, slíkt er ósættanlegt í “frjálsu” þjóðfélagi. Við þykjumst vera svo frjáls í þessum vestræna heimi. Horfum yfir til miðausturlanda og montum okkur yfir...

Re: PARKÓDÍN!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Það hlýtur að skipta miklu máli að hræsnin í þjóðfélaginu sé svona mikil. Við megum neyta áfengis og tóbak eins og okkur sýnist. Sem eru með mest ávanabindandi og hættulegustu fíkniefnum sem til eru. Sér enginn hræsnina í þessu?

Re: PARKÓDÍN!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Þá hefur þú greinilega minni trú á almenningi en ég. Þó það aukist kannski tímabundið neysla þá fer samfélagið okkar ekkert il helvítis þó það verði aukið frelsi einstaklingsins. En þú hlýtur þá að styðja það að áfengi og tóbak verði bönnuð þar sem þau eru skaðlegri en mörg ó lögleg fíkniefni.

Re: PARKÓDÍN!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Já það virðist vera erfitt fyrir suma að hætta þjóðarsportinu að benda fingrinum alltaf að stjórnvöldum þegar eitthvað er að í lífinu.

Re: Sjálfstæðisflokkur og Vinstri græna í stjórn!

í Deiglan fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Tja er það ekki frekar raunverulegt lýðræði? Að allt alþingi verði fulltrúar þjóðarinnar og hóparnir hafi völd miða við hlutföll þeirra. Það hljómar allavega betur en að rétt rúmlega helmingur geti niðist á afgangnum.

Re: PARKÓDÍN!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Gott dæmi… Við bönnum ekki hnífa eða bíla af því það er hægt að misnota þau. Við bönnum frekar árásir með hnífum og að keyra á fólk. Saklaus þanga til sekt er sönnuð. Ekkert réttlætir að svipta fólk frelsi án þess að þau hafi skert frelsi annarra.

Re: PARKÓDÍN!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Neysla tekur ekki ábyrgðina af einstaklingnum. Hefur þú séð hvernig miðbærinn er um helgar vegna áfengisneyslu? Margt hefur vissar afleiðingar í þjóðfélaginu, en einstaklingurinn verður samt að bera ábyrgð á hegðun sinni alltaf. Ef maður vill hafa sjálfur frelsi þá verður maður að virða frelsi annarra þó maður sé ekki sammála neyslunni/hegðuninni. Best væri að setja bara í stjórnarskránna að frelsi megi ekki skerða nema það skerði frelsi annarra. Gefa öllum algjört frelsi á meðan það felst...

Re: PARKÓDÍN!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Tek frekar bara meira af daufari lyfjum en að standa í einhverju safadæmi.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok