Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

skuggi85
skuggi85 Notandi frá fornöld 40 ára karlmaður
3.796 stig

Re: PARKÓDÍN!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Já einmitt. Gott að þú ert að ná þessu.

Re: Ugh... >_

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Já sumir eru með þetta náttúrulega í fínu lagi. En alltaf leiðinlegt þegar karlmenn hafa hræðilegar augnbrýr af því það þykir ekki karlmannslegt að plokka þær.

Re: PARKÓDÍN!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Já. Þó það séu ekki lyfseðlar þá getur þú samt sem áður farið til læknis til að fá leiðbeiningar og ráð. Enginn fer að neyða þig til þess að misnota lyf.

Re: Ugh... >_

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ojjj plokkarðu ekki augnbrýrnar? :/ Alltaf jafn sorglegt þegar karlmenn gera ekkert í slíkum málum. Þú getur alveg hugsað um augnbrýrnar án þess að þær verði kvenlegar. Var orðið hræðilegt hjá bróður mínum þegar hann var á lausu. Fagnaði því þegar hann byrjaði með stelpu sem réðst á hann með plokkara.

Re: Sjálfstæðisflokkur og Vinstri græna í stjórn!

í Deiglan fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Í raun telja flestir fræðingar að það sé mikið æskilegra að ráðherrar starfi ekki sem þingmenn. Sumir segja að það sé jafnvel hagsmunaárekstur. Ráðherrar myndu samt hafa rétt til þess að ávarpa þingið, alveg eins og forsetinn fær að gera (í mörgum löndum). En þeir eru bara ekki að starfa þar fullu starfi og hafa ekki atkvæðisrétt. Til að minnka líkur á spillingu er best að hafa það á hreinu fyrir kostningar hvaða ráðuneyti sér um hvað. Og það verði óbreytilegt yfir kjörtímabilið. Svo það sé...

Re: PARKÓDÍN!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Félag Áfengisráðgjafa sendir frá sér eftirfarandi ályktun 22. apríl 2005 Eftirfarandi bréf var sent til allra þingmanna og ráðherra í dag Föstudaginn fimmtánda apríl birti Hagstofan nýjar tölur um sölu áfengis á Íslandi. Sama dag bárust fréttir frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, WHO um stóraukinn áfengisvanda í Evrópu. Samkvæmt tölum frá WHO veldur áfengi 1,8 miljón dauðsfalla á ári (u.þ.b. 3,2 % af heild). Út frá þessum tölum má ætla að áfengi valdi 50-60 dauðsföllum á íslandi ár hvert....

Re: PARKÓDÍN!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ok. Þú ert sem sagt á móti frelsi einstaklingsins? Banna allt sem er óhollt? Setjum bara í lög að allur matur verði að vera diet. Með minna en 10% fitu. Banna McDonalds, Dominos, American style….. Flesta skyndibitastaði. Offita vegur meira á heilbrigðiskerfinu í dag en reykingar.

Re: Áfengi

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Þegar ég var 14 prófaði ég að fikta smá. Á nokkra mánaða fresti. Byrjaði að drekka af alvöru þegar ég var 16 ára og þá með samþykki móður minnar, sama tíma og ég byrjaði að fara niður í bæ. En hef samt alltaf drukkið hóflega. Það voru skilyrðin frá mömmu og ég hef haldið mig við það. Verð tvítugur eftir 2 vikur en ætla samt að halda áfram að drekka hóflega :P

Re: PARKÓDÍN!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Sá auglýsingu nýlega þar sem voru sýnt mánaðarlega tölur þeirra sem deyja vegna tóbaks. Nokkrir tugir í hverjum mánuði. Hérna á Íslandi. Af hverju er í lagi að fólk drepi sig með tóbaki en ekki t.d. verkjalyfjum eða E-pillum? Hvað réttlætir þessa mismunun?

Re: Sjálfstæðisflokkur og Vinstri græna í stjórn!

í Deiglan fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Það verður náttúrulega líka að aðskilja ráðherra og þingmenn. Eins og er í mörgum erlendum löndum. Ráðherrar sjái eingöngum um ráðuneytið sitt og skipti sér ekkert af Alþingi. En jú ætli það myndi ekki virka betur að hafa bara vissa kvótareglu en að fara út í aðrar kosningar. Í dag eru 12 ráðuneyti. Miða við úrslit kosningana myndu þau skiptast svona… Sjálfstæðisflokkurinn: 4 Samfylkingin: 4 Framsóknarflokkurinn: 2 Frjálslyndir: 1 Vinstri grænir: 1 Þetta hlýtur að endurspegla þjóðina betur...

Re: PARKÓDÍN!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ég styð að það séu settar takmarkanir fyrir ungt fólk þar sem það eru ósjálfráða einstaklingar sem foreldrar geta ekki fylgst með hverja einustu sekúndu. Parkódín var líka með aldurstakmark í lausasölunni.

Re: PARKÓDÍN!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Einmitt. Þess vegna bönnum við ekki byssur, við bönnum hegðunina að skjóta annað fólk. Meirihluti þeirra sem nota fíkniefna eru ekki gangandi um bæinn að ráðast á fólk. Áfengi eykur ofbeldishneigð meira og drepur fleira fólk en stór hluti fíkniefna. Hræsnin er ÓENDANLEG í þessu þjóðfélagi.

Re: Sjálfstæðisflokkur og Vinstri græna í stjórn!

í Deiglan fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Nei það yrði mikið öðruvísi. Auðvitað myndi stærsti fá mest. Minnsti flokkurinn myndi líklega ekki fá neinn ráðherra. En er ekki skárra ef það endurspeglar alla þjóðina en ekki bara meirihlutann? Alveg eins og Alþingi. Nú fær Framsóknarflokkurinn nokkra ráðherra, meðal annars forsætisráðherra. Þrátt fyrir að Samfylkingin sé mikið stærri flokkur. Við hljótum að geta haft betra lýðræði en þetta.

Re: PARKÓDÍN!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Jú jú alveg örugglega. En síðan hvenær eru ungmenni ekki fólk? Eru þau ekki hluti af heildinni? Ungt fólk misnotar líka frekar verkjalyf eða ólögleg fíkniefni. Ungt fólk misnotar bara almennt frekar en aðrir aldurshópar. Hverju á þessi niðurstaða að breyta?

Re: PARKÓDÍN!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Hættu að hugsa um þinn eigin rass! Hættu að vera svona sjálfselskur! Ríkið snýst ekki um þig, það snýst ekki um þína hárgreiðslu eða þitt vit. ÞEssi Narcissmi þinn virðist stundum vera alveg út í hött! Ímyndaðu ef allir hugsuðu svona! Ó æjæj, hann keyrði á. Af hverju ætti ég að hjálpa honum úr bílflakinu? það er hans vandamál að hann keyrði á en ekki mitt. Eða, Þessi á erfitt með að læra að lesa. Oh jæja, það er ekki mitt vandamál heldur hans. VIÐ verðum að standa saman, vandamál...

Re: PARKÓDÍN!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Það er bara víst verið að skerða mitt frelsi. Ég ber ekki ábyrgð á heildinni, aðeins á sjálfum mér. Of the two thirds of the North American population who consume alcohol, 10% are alcoholics, and 6% consume more than half of all alcohol. http://en.wikipedia.org/wiki/Alcoholic Fann engar tölur yfir Ísland. En ég held að við séum örugglega yfir meðaltalið í heiminum. Í Bandaríkjunum eru rúmlega 100.000 manns sem deyja árlega vegna áfengisneyslu. Ef Ísland er með svipað hlutfall þá eru það 100...

Re: PARKÓDÍN!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Það er semsagt allt í lagi að hafa koffínfíkn, nicotinefíkn og áfengisfíkn? En ekki annað? Af hverju? Menningin? Meirihlutinn? Hvað í helvítinu réttlætir slíka mismunun? Bara ekki á meðan það er í töfluformi. Það er nefnilega engin menning í kringum verkjalyf eins og með löglegu fíkniefnin.

Re: PARKÓDÍN!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Þú ert svo ekki í tengslum við raunveruleikann. Fullorðnir fá sér glas með matnum og unglingar drekka sig fulla. Býrðu á Íslandi? Kíktu niður í bæ um helgar. Þú sérð fólk á öllum aldri ælandi og geta valla gengið vegna drykkju. Allt frá 15 ára stráki upp í miðaldra húsmóður.

Re: Sjálfstæðisflokkur og Vinstri græna í stjórn!

í Deiglan fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Betra er að allt endurspegli þjóðina í heildina. Ekki bara þá sem taka sig saman og ná að mynda meirihluta. T.d. að alþingi sjái um að kjósa framkvæmdarvaldið.

Re: Vinátta, framhjáhald eða samsæri?

í Fræga fólkið fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Já það er erfitt að ná hárinu þegar það er svona út um allt :/

Re: PARKÓDÍN!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Slíkt breytir engu. Fólk notar áfengi aðallega sem vímugjafa. Viltu kannski að það verði bannað að drekka sig fullan? Lögreglan fer á skemmtistaði og handtekur fólk fyrir það eitt að hafa fengið sér meira en 1-2 glös af áfengi. Fólk kýs að fara í vímu, sumir með áfengi og aðrir með öðrum efnum. Stjórnvöld eiga ekki að skipta sér af því hvaða efni maður notar til þess að komast í vímu.

Re: PARKÓDÍN!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
E-pilla með réttri notkun og réttri efnasamsetningu drepur ekki. Þau fáu dauðsföll sem verða af e-pillur eru annað hvort vegna rangrar notkunar eða vitlausra efnasamsetningu, t.d. að það sé bætt rottueitri til að spara peninga. Áfengisneytendur eru 50x líklegri til þess að drepast af neyslunni en þeir sem nota e-pillur. Hugsa út fyrir áróðurinn.

Re: PARKÓDÍN!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
átti að vera hlutfallslega fleiri. ekki færri.

Re: PARKÓDÍN!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
ALLTAF einhverjir sem misnota þetta. Þeirra vandamál, ekki mitt. Það er rangt að misnota lyf Skoðun. Þú hefur engan rétt að þröngva þessu yfir aðra. Þetta er minn líkami og ég geri það sem mér sýnist við hann. Skilurðu þetta kerfi? Skil það en er ekki sammála því. Það er ekki sanngjarnt að skerða mitt frelsi af því aðrir eiga erfitt. Alveg eins og það er ekki rétt að stela hluta launa minna til þess að borga undir aðra. áfengi hefur STÆRRI markhóp en þessi banvænu lyf? Hugsaðu aðeins út í...

Re: PARKÓDÍN!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Nei nei ég þarf þess bara ekki neitt. Að skerða mitt frelsi af því sumir ráði ekki við slíkt frelsi er ekki sanngjarnt. Ef ég vil kaupa mér morfín, hass, E-pillur eða verkjatöflur fyrir minn líkama þá kemur það hvorki þér eða stjórnvöldum við. Þetta er minn líkami og ég hlýt að mega nota hann eins eftir því sem ég tel vera best.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok