Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

skuggi85
skuggi85 Notandi frá fornöld 40 ára karlmaður
3.796 stig

Re: laun kennara

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Sömu rök og af hverju kommúnismi virkar ekki. Það þarf að vera þrýstingur á að maður leggi sig fram til þess að klifra upp lífsgæðastigann. Eftir því sem stéttarskipting er minni, því minni er þrýstingurinn á slíkt. Maður fær allt upp í hendurnar og sér ekki tilganginn með að standa sig. Aldrei heyrt um hugtakið ofmenntun?

Re: Eru hernaðaraðgerðir einhverntímann réttlátanlegar?

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Fluttu gyðingar þangað árið 1948? Þetta var nú aðeins úr samhengi. Annars þá var ráðist á þá af fyrra bragði árið 1948. Lítil þjóð á móti hundruðum milljóna araba svo maður skilur alveg að þeir hafi verið harkalegir.

Re: laun kennara

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Ríkið stendur sig líka bara almennt illa í rekstri. Því er mikilvægt að halda áfram að einkavæða og koma á samkeppni. Annars þá var ég að tala um hvernig menntun er metin af vinnumarkaðnum og samfélaginu almennt en ekki hversu miklum peningum eigi að eyða í hana. Finnst bara ekki æskilegt að það sé ætlast til þess að maður mennti sig 5-10 ár eftir að maður er orðinn sjálfráða. Móðir mín er t.d. í þeirri stöðu að hún er stundum að þjálfa nýtt fólk í fyrirtækinu. Sjálf bara með stúdentspróf en...

Re: laun kennara

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Fullt af fátæku fólki hefur náð að mennta sig. Fá styrki, blandað saman t.d. sumarskóla og kvöldskóla, fjarnám… Það eru ýmsir valmöguleikar. Auk þess að það er ekki endilega allt eða ekkert. Að fara í 10 ára háskólanám eða vera ómenntaður. Möguleikar á styttri námum og starfsþjálfunum sem auka kjör eru að aukast. Erlendis er margfalt meira af slíkum möguleikum en hér á Íslandi. Það er engin tilviljun að stéttaskipting hefur verið að aukast seinustu árin ásamt meiri velmegun. Bilið milli...

Re: laun kennara

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Sömu tækifæri til athafna. Ekki það að stjórnvöld borgi manni sömu lífsgæði. En aftur.. jú það er bara víst af því að þarna er verið að fylla sérstök hverfi eða jafnvel heilu bæina sérstaklega af innflytjendum í stað þess að láta þá blandast landinu. Skiljanlegt er að frakkar lýti ekki á þetta fólk sem alvöru frakka þegar þau einangra sig og læra ekki tungumálið. Í slíkri einangrun læra börn sem fæðast þar ekki einu sinni frönsku af því 90% af fólkinu í kring eru aðrir einangraðir...

Re: Eru hernaðaraðgerðir einhverntímann réttlátanlegar?

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Til að byrja með þá urðu lífsgæði þeirra betri við það að hafa Ísraelsmenn. Sem hófu mikla uppbyggingu og komu með nýjustu tækni á svæðið. Lífsgæði og efnahagur náðu sögulegu hámarki hjá Palestínumönnum þegar báðar þjóðir gátu unnið saman og stundað viðskipti. Það endaði þegar Palestínumenn/arabar hófu árásir af fyrra bragði í þeim tilgangi að útrýma Ísrael. Ísraelsmenn hertóku þá ýmis landssvæði (önnur en þeim var úthlutað af Sameinuðu Þjóðunum) ásamt því að þrengja að Palestínumönnum. Ætli...

Re: laun kennara

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Menntun er bæði ofmetin og vanmetin eftir sviðum. Ekki alhæfa svona.

Re: laun kennara

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Núna ertu að blanda saman almennri stéttarskiptingu og að fara illa að innflutningi fólks í landi. Þetta eru eins og litlar nýlendur í Frakklandi þar sem er ekki einusinni haldið upp lögum nema það séu sérstök lög. Innflytjendur eru einangraðir og fá ekki sömu tækifæri. Mikilvægara er að gera kröfur um að blandast þjóðfélaginu, meðal annars með því að læra tungumálið. Og ekki flytja inn milljónir í sömu úthverfin. Sumir nota tækifærið til að blanda trúarbögðum eða stéttarskiptingu inn í...

Re: laun kennara

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Síðan hvenær varð stéttarskipting slæm?

Re: laun kennara

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Einfaldasta leiðin til þess að hækka laun þeirra er að einkavæða menntakerfið.

Re: nú er mælirinn fullur

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Já… Þá er ég einmitt sammála þér. Hjónaband er orðið lagalegt fyrirbæri en í raun ætti það bara að vera athöfn og siður hjá þeim sem kjósa slíkt. Ýmis lög eru þeim í hag sem eru í hjónabandi en þeim sem eru bara í sambandi, þó þau séu jafn ástfangin og skuldbundin hvor öðru. Langamma mín og langafi minn bjuggu saman í hálfa öld án þess að vera gift. Þegar hann veiktist þá neyddust þau til þess að giftast svo hún myndi ekki missa allt. Á Íslandi er ekki hægt að gera erfðaskrá eins og...

Re: nú er mælirinn fullur

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Hjónabandið bara skiptir ekki neinu máli í þessu hérna á Íslandi. Við erum alveg á mörkunum að vera búin að útrýma þessu. Öll þau ung pör sem ég þekki og eru trúlöfuð eða gift eru með frekar jafna skiptingu. Það er enginn sem neyðir konur til þess að taka þessari fornu skiptingu hlutverka. En það er ekkert rangt við það ef að kona kýs að vera bara húsmóðir á meðan karlinn sér um vinnumarkaðinn. Eða öfugt. Við eigum ekki heldur að láta neyða okkur út í 50/50 skiptingu af því það er í tísku í...

Re: "útlitið skiptir ekki máli"

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Einmitt. Ég sagði líka aldrei neitt á móti því. Hver hefur sinn smekk. Fólk tekur þetta dálítið á öfgafullann hátt þegar maður segir að útlit skipti máli. Ég sagði aldrei að það skiptir ÖLLU máli eða að allir eigi að fara eftir sömu formúlunni.

Re: nú er mælirinn fullur

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
En já með vinnuna er einmitt rétt. Af hverju kjósa konur frekar að vinna í þjónustustörfum eða umönnun en að fara t.d. í iðnaðarvinnu eða út á sjó? Má ekki brjóta neglurnar? Af hverju er ekki barist fyrir slíku af sama krafti og að komast á Alþingi eða í stjórnunarstöður fyrirtækja?

Re: nú er mælirinn fullur

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Já bræður mínir hafa alltaf verið í hundaról hjá makanum. Konurnar stjórna öllu bak við tjöldin hérna á Íslandi. Er feginn að vera hommi :)

Re: nú er mælirinn fullur

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Slík stéttarskipting er æskileg í mörgum þjóðfélögum. Maður skilur alveg af hverju þetta var svona í gamla daga. Svo er talað um konurnar sem einhver fórnarlömb. Af hverju var karlinn ekki fórnarlamb að vera kúgaður til þess að fara út að vinna á meðan konan fékk að dúlla sér heima með börnin? Ég meina hvað höfum við misst marga karlmenn í sjóinn? Ekkert sambærilegt er hjá konum.

Re: Eru hernaðaraðgerðir einhverntímann réttlátanlegar?

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Já aumingja þau. Vonandi lagast þetta þegar þau hætta að ráðst á Ísrael.

Re: "útlitið skiptir ekki máli"

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Útlit eins og allt annað hefur áhrif á heildarmyndina. Það fer gegn eðli mannsins að algjörlega útiloka slíkt. Svipað og þeir sem segjast vera algjörlega lausir við fordóma. Svo er alltaf jafn fyndið þegar maður sér fólk sem er að dissa sílikon-gellur og ljósabekkja-hnakka með 6pack halda því fram að þau séu eitthvað minna grunnhygginn en aðrir. Ef þau kjósa að vera ekki með slíku fólki þá hljóta þau að vera alveg alveg eins bara í öfuga átt. Öll höfum við sérstakan smekk á öllu. En auðvitað...

Re: Stjórnmál

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Ó ert þú svoleiðis?

Re: Stjórnmál

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Já sniðugt :) En hvað með þá sem eru nú þegar í Framsókn? Með vinstri grænum?

Re: Eru hernaðaraðgerðir einhverntímann réttlátanlegar?

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Er gagnlaust að hafa svæði fyrir 11.000 íbúa?

Re: Stjórnmál

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Guð minn góður nei það á ekki að fjölga þingmönnum. Það á að…. * Hækka kjör þeirra. Munurinn á kjörum stjórnmálamanna og viðskiptamanna er miklu meiri hér á landi en gengur og gerist erlendis. Láglaunafólk vælir yfir því ef að kjör þeirra hækka hlutfallslega meira en hjá öðrum. Þetta eru einfaldlega skítakjör miða við einkageirann og það er skömm að toppmennirnir fái mikla launahækkun eftir að yfirgefið er pólitíkina. Útkoman: Hæfara fólk og minni líkur á að hægt sé að kaupa þingmenn af...

Re: Commies aren't cool!

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Já ég meina myndin af honum er á bölum í sömu verslunum og selja Eminem boli. Hann hlýtur bara að vera geggjaðzlega kúl sko.

Re: "Ég borða bara hvítt kjöt"

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Ég myndi persónulega kjósa dauða frekar.

Re: Commies aren't cool!

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Che var eins og blanda af Osama og Saddam.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok