Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

skuggi85
skuggi85 Notandi frá fornöld 40 ára karlmaður
3.796 stig

Re: Hetjur óskast! En ekki allar samt...

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 4 mánuðum
En samt sem áður eru líka góð rök fyrir því að banna konum að gefa blóð. Og eins og ég hef sagt núna oft, það eru seinustu 6 mánuðir sem skipta öllu máli. Hvað þú gerðir fyrir nokkrum árum hefur engin áhrif.

Re: Aumingja Norðmenn...

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Háar tekjur fyrir dópista sem fær sér skammt frekar en að kaupa mat.

Re: Linkin park og ástandið í París

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Nú er vinur minn arabi (var múslimi) og ég hef aldrei séð neinn útlending áður á ævi minni sem hefur lært tungumálið jafn hratt og hann. Búinn að búa hérna í 6 ár og flestir halda að hann hafi verið ættleiddur sem krakki þar sem hann getur tjáð sig algjörlega á Íslensku (hætti að nota enskuna eftir 3-4 ár hérna). Svo hefur hann staðið sig vel í sömu vinnunni seinustu 5 árin og hefur ekki einu sinni fengið styrk frá ríkinu. Þetta er ekki spurning um að hleypa fólki inn í landið eftir flokkum...

Re: Hetjur óskast! En ekki allar samt...

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Eins og ég sagði þá skiptir mestu máli hverjir eru nýbúnir að smitast. Ef þú hefur verið smitaður í meira en 6 mánuði þá er pottþétt að veiran mælist í blóðinu. Þannig að þó að það sé hópur eldri manna sem smituðust á hommafaralds-tímabilinu þá breytir það engu enda örugglega flestir komnir með greiningu en jafnvel þó þeir færu og gefðu próf þá myndi það mælast þar. Ég er annars ekki að fatta þessa 60% tölu sem þú dregur upp. Á þetta að vera hlutfall samkynhneigðra sem eru smitaðir? Ég var...

Re: Aumingja Norðmenn...

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Það breytir engu hvort það séu sníkjudýr eða ekki. Það er alltaf visst tap að fólk fái að hanga heima á launum. Að slíkt aukist gífurlega er auðvitað vandamál. Flestir vinstri flokkar virðast hafa vilja fyrir því að lengja listann yfir þá sem eiga rétt á bótum. En nei aðal ástæðan er sú að það er leyft t.d. dópistum, þunglyndum, feitum og ölkum að fara á bætur. Margir komast upp með slíkt ár eftir ár og það er enginn að reka þetta fólk út að vinna, sem að mínu mati myndi gera þeim flestum...

Re: Hetjur óskast! En ekki allar samt...

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Er þetta samt ekki fyrir visst tímabil? Það er nefnilega meira en ár síðan ég tók seinast í nös.

Re: Hetjur óskast! En ekki allar samt...

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Í raun segir það ekkert. Af því einn lauslátur karlmaður getur smitað margar konur.

Re: Drykkur....

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Svona 1x í mánuði :/

Re: Vinátta stelpna og stráka.

í Rómantík fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Á meðan einn vinurinn vill alltaf eitthvað meira en vináttu, þá því miður á það ekki eftir að ganga upp. Þú verður ekki vinur hennar eftir 10 ár nema það verði allt í einu rosaleg breyting. Að halda í vináttu og vera ástfanginn bak við tjöldin er eitt af því hræðilegasta sem manneskja getur gengið í gegnum. Finnst þetta jafnvel ekki vera neitt mál ÞANGA TIL allt í einu hrynur þetta einn daginn… Drama, þunglyndi og læti ásamt því að missa vináttuna. Ég held að það besta sem þú getur gert er...

Re: Drykkur....

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Já vatn er gott þegar maður vaknar á laugardegi í sófa sem maður kannast ekki við og er að drepast í höfðinu :/

Re: Hetjur óskast! En ekki allar samt...

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Ég hef aldrei sprautað mig :)

Re: Hetjur óskast! En ekki allar samt...

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Rökin eru einföld. Konur hafa í miklu meira magni verið að smitast af HIV en karlar seinustu árin. Og það eru nýsmitað fólk sem er hættulegast. Sá sem hefur verið greindur er ekkert á leiðinni í að gefa blóð, hættan er hjá þeim sem smituðust seinustu mánuðina og vita ekki af því ásamt því að það mælist ekki endilega hjá blóðbankanum að blóðgjöfin sé smituð. Og hvaða hópur hefur smitast mest seinustu árin? Já gagnkynhneigðar konur. Auk þess þá gefur líka hver kona minna blóð í einu svo karlar...

Re: Aumingja Norðmenn...

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Já örugglega sama af því þá var hægri stjórn. En núna er vinstri ;)

Re: Hetjur óskast! En ekki allar samt...

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Já ég held að ég sé of lauslátur til að gefa. En ég væri til í að gera slíkt þegar ég fer í langtíma samband.

Re: Hetjur óskast! En ekki allar samt...

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Nei ég held að veiran fjölgi sér ekki á eðlilegan hátt nema vera í mannslíkamanum. Annars held ég að það líði meira en 6 mánuðir og þanga til blóðið er notað. En samt eru þetta rök sem ég hef heyrt frá blóðbankanum að þessir mánuðir séu áhættumánuðir. Sérstaklega seinustu þrír en eftir 6 verður það 100%.

Re: Könnun

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Kominn með tæpa milljón inn á bók. Er að safna fyrir íbúð. En já væri ekki frábært að gefa Rúv þennan pening til þess að styrkja dagskrá sem markaðurinn nær ekki yfir.

Re: Monk og Strong Medicine

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
En finnst þér Monk í alvöru skemmtilegr? Mest pirrandi persóna í sögu sjónvarps.

Re: Könnun

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Ekki reyna að snúa þessu upp í almenna umræðu um þjóðfélagið. The bottom line (afsakið slettuna) er að þú virðist vera sammála því að það sé neytt fólk til þess að borga fyrir þjónustu sem þau nota ekki svo það sé hægt að reka það fyrir aðra. Slíkur menningarlegur mismunur er ekki réttlætanlegur. Af hverju á að niðurgreiða sinfóníu frekar en rapphljómsveit? Hvað réttlætir mismuninn? Fyrst var ekki markaður, svo talar þú um þúsundir manna sem verða að geta horft á þetta. Ef svo er þá er það...

Re: Könnun

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Ég er tíður hlustandi á sendingar frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar eða þætti um fornsagnfræði. Þannig að þér finnst í lagi að aðrir borgi undir eitthvað handa þér sem ekki er markaður fyrir? Myndi ég njóta þess efnis ef að fyrirtæki tæki yfir RÚV með það í huga að græða pening? Nei, ég held ekki. Þetta er sjálfselska en ekki rök fyrir mikilvægi ríkisfjölmiðils. Annað ágætis dæmi fyrir notagildi RÚV er sú staðreynd að hún næst hvar sem er á landinu. Breytist það ef það verður selt...

Re: Monk og Strong Medicine

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Nei nei en ég var nýbúinn að vera að horfa á endursýnda gamla þætti svo það var smá shock að sjá hana allt í einu þarna. Heh.

Re: Könnun

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Hvort sem það tekur afstöðu eða ekki þá myndi það aldrei þora að gagnrýna stjórnvöld jafn harkalega og aðrir fjölmiðlar. En hvert á hlutverk Rúv að vera þá? Þú virðist vera á móti að það taki afstöðu í pólitík eða komi með efni sem markaðurinn getur ekki séð um. Hvað þá? Af hverju er mikilvægt að hafa ríkisfjölmiðil?

Re: Könnun

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Ekkert bendir til þess að starfsmenn á fjölmiðlum Baugar séu að fá beinar skipanir frá yfirmönnum. En það er þessi þrýstingur bara að hafa þá vitneskju að Baugur á fjölmiðilinn. Sem hefur augljós áhrif á fréttaflutning. En sama gildir um Rúv. Stjórnvöld með sinn meirihluta gætu breytt fjármögnum eða jafnvel fellt Rúv ef það ætlar að fara í stjórnarandstæðu sem fjölmiðill. Ríkið á ekki að standa í fjölmiðlarekstri neitt frekar en að selja áfengi.

Re: írafár!

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Hugsaðu bara um sérstöku börnin sem græða á þessu.

Re: Könnun

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Því er fáránlegt að tala um fjölmiðlalög (gegn Baugi) á meðan Sjálfstæðismenn fara reglulega á einkafundi á Morgunblaðinu við ritstjóra og Rúv er rekið. Bara hafa alfjört frelsi. Stjórnvöld verða bara að sætta sig við að ekki geta allir fjölmiðlar verið á þeirra bandi.

Re: Monk og Strong Medicine

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Þessi nýja (sem var eiginkonan í Home Imrpovement) er alveg fín líka. Dálítið skrýtið fyrst að sjá hana svona “gamla” en búinn að venjast henni.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok