Vinstristjórn komin og strax á að hækka skatta. Hversu mörg ár ætli það taki þau að ýta Noregi úr mestu velmegun sem þekkist í heiminum? Vonandi fá þeir bara eitt kjörtímabil svo skaðinn verði sem minnstur.

Skattahækkanir boðaðar í Noregi á næsta ári

Ríkisstjórn Noregs hefur boðað skattahækkanir á næsta ári. Verða þær notaðar til að auka útgjöld til velferðarmála. Hin þriggja vikna gamla ríkisstjórn sem leidd er af Jens Stoltenberg, forsætisráðherra, mun að mestu halda sig við fjárlagafrumvarp fyrri ríkisstjórnar fyrir árið 2006.

Aftur á móti verða útgjöld til velferðarmála aukin verulega. Alls er ætlunin að auka útgjöld til velferðarmála, samgangna og menningar um 3,8 milljarða norskra króna, 35,8 milljarða íslenskra króna.

Fjármálaráðuneyti Noregs hefur heldur lækkað spár um hækkun vergrar landsframleiðslu í ár, úr 3,7% í 3,6%.

http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1168115