Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

skuggi85
skuggi85 Notandi frá fornöld 40 ára karlmaður
3.796 stig

Re: Nú er nóg komið

í Deiglan fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Mainstream media? Hætta að trúa hverju? Ég veit ekki betur en Íslendingar hafi verið flestir á móti innrás þarna frá byrjun. Fréttir hérna um stríðið hafa verið að mestu neikvæðar. Sama má segja um alla Evrópu og líka í Bandaríkjunum. Nóg komið? Þetta var fyrir meira en ári síðan og nú árið 2005 er lýðræðisþróun Íraks alveg að vera búin. Af hverju að gefast upp núna einmitt þegar Írakar eru að stíga inn í bjartara tímabil? Þú hefur greinilega fallið fyrir mainstream media þar sem þú lýtur á...

Re: Til hamingju!

í Tilveran fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Hjónaband er lagalegt fyrirbæri hér á landi sem nær yfir bæði trúlausa og öll trúarbrögð. Þó það sé samþykkt samkvæmt lögum þá þýðir það ekki að kirkjan þarf að blessa samböndin.

Re: Til hamingju!

í Tilveran fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Afsakið en það er ekki í hring kirkjunnar að ákveða þetta. Í raun eina sem hún fær að ákveða er hvort það sé blessað slík hjónabönd eða ekki.

Re: Til hamingju!

í Tilveran fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Og svo tekur við 10 ára verkefni að finna og semja við land um að fá hingað börn handa samkynhneigðum. En núverandi lönd sem við erum með samninga við banna öll slíkar ættleiðingar, alveg örugglega til einstaklinga líka.

Re: Fast í þeim!

í Deiglan fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Svo er alltaf gott að setja sig í spor þeirra. Það er alls ekki auðvelt að læra tungumálið og komast í góðan vinahóp Íslendinga þegar maður er innflytjandi. Sérstaklega þegar maður er frá vissum löndum, t.d. Póllandi eða Tælandi. En já útlendingar eru í dag að koma í veg fyrir fólksfækkun hér á landi, enda er frjósemi mjög lítið. Fólksfækkun hefur skelfilegar afleiðingar á efnahaginn svo þessi störf sem útlendingar eru að “stela” hér á landi eru að bjarga efnahagnum okkar. Ásamt því að oft...

Re: Fast í þeim!

í Deiglan fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Það er þörf á átaki :/

Re: Norðurlandatungumál

í Skóli fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Því yngri sem maður er því auðveldara er að læra tungumál. Því er æskilegt að auka valmöguleika í stað þess að láta krakkana bíða eftir því að fara í framhaldsnám. Ég væri sáttur við val á tveimur af fjórum tungumálum í boði í grunnskóla. Ef norðurlandatungumál á að vera eitt þeirra í boði þá myndi ég frekar vilja hafa norsku heldur en dönsku. Það hefur alveg verið sátt um það seinustu árin að það þarf að auka fjölbreytni í grunnskólum. Það hefur bara ekki verið farið út í það, líklega af...

Re: Grein 1. Byrjendur í uppbyggingu vöðva.

í Heilsa fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Held að hann hafi verið að beina þessu til þeirra sem eru að byrja. Svo maður verði ekki uppgefinn þegar kemur að því að lyfta.

Re: Fast í þeim!

í Deiglan fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Þeir arabar sem ég hef hitt nefna einmitt allir hvað Íslendingar séu lokaðir. Því kemur þessi lýsing í greininni mér á óvart.

Re: Fast í þeim!

í Deiglan fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Ég myndi ekki þora að labba aleinn á kvöldin í fátækum borgum úti í heimi, óháð því hvort þar búa arabar eða aðrar manneskjur.

Re: Versta lag allra tíma?

í Tilveran fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Fer eftir ýmsu.

Re: Versta lag allra tíma?

í Tilveran fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Ég er reyndar alveg sammála því að þegar maður lýtur á þetta frá andlegu sjónarhorni að þá eru ekkert allir með ríkisborgararétt Íslendingar. En ég er ekki heldur sammála því að það sé nauðsynlegt að fæðast í landinu.

Re: Norðurlandatungumál

í Skóli fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Við græðum ekkert á dönsku þegar danir tala ensku, meðal annars með því að bjóða upp á nám á ensku í háskólum landsins. Auk þess er danska ekki algengt tungumál. Meira vit að læra arabísku, kínversku, spænsku… Annars held ég að það sé bara æskilegt að auka valmöguleika í menntakerfinu á öllum stigum.

Re: Norðurlandatungumál

í Skóli fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Sjálfur trúi ég ekki að það verði neitt ríkjandi stórveldi á eftir Bandaríkjunum. Sjálfur tel ég að lífsgæði og völd muni verða miklu dreifðari eftir nokkra áratugi en þau eru í dag. En jafnvel þó Kína fari ekki á toppinn þá ættum við að græða vel á því að kenna tungumálið hérna, án efa meira en með dönskunni. Núna strax árið 2005 eru kínverskir ferðamenn þeir sem aukast mest hér á landi. Þetta er svo stór þjóð að við ættum að geta grætt á því þó að landið verði ekki heimsveldi.

Re: Norðurlandatungumál

í Skóli fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Finnst eins og við ættum að kenna kínversku í staðin fyrir norðurlandatungumál. Það breytir engu hversu mörg ár við höfum verið að læra þessi tungumál, við björgum okkur oftast á ensku þegar talað er við aðra norðurlandabúa. Nú er verið að tala um að gera ensku að öðru tungumáli Danmerkur svo maður enginn ætti að mótmæla því að maður noti enskuna í viðskiptum eða námi þar. Hugsum þetta frá markaðslegu sjónarhorni. Er ekki gáfulegt að skipta út dönskunni fyrir t.d. kínversku? Undirbúa okkur...

Re: Hlutdrægir dómarar :@

í Tilveran fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Enginn er algjörlega hlutlaus.

Re: Erlent vinnuafl ódýrara

í Deiglan fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Ekki á meðan það er farið rétt af því. T.d. að sleppa því að byggja heilar nýlendur, gera kröfu um að læra tungumálið, vera í föstu starfi og ekki á kerfinu fyrstu árin…. Íslendingum væri örugglega byrjað að fækka í dag ef það væri ekki fyrir auknum innflutningi, enda er frjósemi mjög lág og ekkert bendir til þess að það breytist allavega næstu áratugina. Útlendingar eru ekki að “stela” störfum heldur taka að mestu að sér störf sem Íslendingar vilja ekki ásamt því að koma í veg fyrir...

Re: Morðmál

í Deiglan fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Nei það er ekki rugl. Það er hvetjandi til þess að taka ábyrgð á gjörðum sínum en ekki vera á flótta. Sem oft endar með því að valda meiri skaða.

Re: Pæling,pæling,pæling...

í Popptónlist fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Þannig að Celine Dion er píkupopp?

Re: Michael Jackson kóngur

í Popptónlist fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Mjög líklega er hann með BDD. Sem er andleg þráhyggja. Hann er skólabókardæmi yfir slíkt. Faðir hans var alltaf að setja út á útlitið hans í æsku og sérstaklega nefið á honum.

Re: Michael Jackson kóngur

í Popptónlist fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Madonna hefur verið drottningin þó hún var ekki fyrsta að syngja popp. Michael Jackson hefur verið kallaður King of Pop milljón sinnum í ýmsum fjölmiðlum. Ef ég man rétt þá var Elvis bara kallaður “The King” eða “King of Rock and Roll”.

Re: Goth = Djöfaldýrkendur

í Tilveran fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Og t.d. það að þeir séu fátækari en flestir í borginni tengist því ekkert? Hvernig tengist það trúarbrögðunum?

Re: Goth = Djöfaldýrkendur

í Tilveran fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Voru þetta þá ekki bara Bandaríkjamenn? Eða Íslendingar með flugelda?

Re: Stöð 2

í Tilveran fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Held að þetta hafi verið sögulega slæmur fréttatími. Held að þetta endaði svona af þvú fullt af tækniliðinu og búnaði er farið á nýja staðinn. Einbeita sér aðallega að koma honum í gang á réttum tíma svo maður fyrirgefur þeim kvöldið í kvöld.

Re: Goth = Djöfaldýrkendur

í Tilveran fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Hvar var þar? Og hvernig vissir þú að þetta voru múslimar?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok