Ég er 21 og ennþá hreinn sveinn :( (já, best að koma því bara frá mér strax, lúserinn ég)

er í háskóla, þekki ekkert voða mikið af fólki (þ.e. engir alvöru vinir sem maður hengur með), er samt ekkert illa útlítandi eða neitt svoleiðis (eða offitusjúklingur, lol)

en já, málið er að ég get aldrei nokkurn tímann komist á séns með stelpum, þær sýna aldrei áhuga á mér… hvernig á maður að geta hitt stelpur ef maður 1) drekkur ekki og fer þ.a.l. aldrei á fillerí niðri í bæ 2) á enga vini til að kynnast þeim í gegnum

bara spyr, ég er að verða ráðþrota, þetta hefur valdið mér miklu þunglyndi síðustu ár :(