Vissulega, en ég held því engu að síður fram að ölvunarakstur sem slíkur hafi voðalega lítið með aldur viðkomandi að gera, frekar almenna andlega vanheilsu eða alvarlegan misþroska, og þar af leiðandi hafi það lítið um umræðuefnið að segja hversu auðvelt það er fyrir viðkomandi einstakling að „redda sér í Ríkið.“ Ég skil samt hvað þú átt við, og þetta gæti jafnvel gengið upp að vissu marki, en allir þeir sem nokkurn tíma hafa verið í menntaskóla ættu að vita að maður finnur alltaf einhverja leið. :)