Ég fíla þetta! Sérstaklega hvíta ljósið í endann, ég fékk svona smá hnút í magann þá.. var komin svo mikil kósý stemning og svo er maður bara sleginn í smettið í endann! me likes
úff, horfði á Crime stories þætti um Gacy í ensku í haust… og hlustuðum á þetta lag í kjölfarið, og mér bara hryllir við þessum manni, og eftir að heyra sögu hans fer maður að hugsa sig tvisvar um með fólk sem virðist ekki geta gert flugu mein…
BÍBÍ! mér finnst pósan hjá krumma frekar skemmtileg, en ég er sammála því að myndin gæti heft meira contrast :) Mér finnst hann vika soldið brúnn..? er ég bara litblind eða?
já nei… ég er svo nýbúin að fá myndavélina mína og gat engan veginn lagað það að hún var marga daga að taka eina mynd því það var svo lítil birta þarna inni… *urrg*
heyrðu… það eru tónleikar í sláturhúsinu á föstudaginn, frítt inn og brjálað stuð! Elysium, Without the Balls, A Long Way to Nowhere, Heilakássa og fleiri verða að spila!
jújú, þetta mun vera reykskynjari! böggaði mig líka en ég get klippt hann út án þess að fokka upp ljósinu Bætt við 17. apríl 2007 - 22:35 ég meina ég get EKKI klippt hann út
Ég er sammála að því leyti að FLESTIR yngri krakkar beri enga virðingu fyrir einu né neinu. En þá er ég að tala um krakka á aldrinum 6-12 ára. Þegar krakkarnir eru komnir á gelgjuna þá breytist þetta eitthvað. En krakkar í dag eru ekkert farnir að reykja og drekka og stunda kynlíf neitt fyrr en vanalega. Ég man eftir krökkum í mínum árgangi ('89) sem byrjuðu að stunda kynlíf í 6.-7.bekk og ég veit ekki til þess að krakkar séu að byrja eitthvað fyrr en það núna. Reyndar hefur hver einasta...
slipknot, metallica og ac/dc eru ekki allur metall, þegar maður er kominn með leiða á þeim þá færir maður sig yfir í þyngra efni sem er svo frábært við metalinn, alltaf hægt að finna eitthvað þyngra ^^
eitthvað verður maður nú að kalla tónlistarstefnuna… og þar sem þú ert svo fróður og ósáttur við þetta nafn þá hlýtur þú að geta komið með nafn sem hentar betur? svo er metall meira en pungsviti og leðurólar, maður kemst að því eftir að hafa vanist stefnunni og hlustað á hana í þónokkurn tíma
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..