Sæl Þú mátt alls ekki leyfa honum að fara svona með þig, að halda þér frá því sem þú vilt gera með samviskubiti þeas. Ég veit auðvitað ekkert hversu mikið ástfanginn hann er af þér, en annaðhvort er hann veikur eða hann er að reyna að halda í þig með ömurlegri og fáránlegri hegðun. Og ef hann er veikur, þá skaltu fá hann til að fara til læknis. Ég tel að hann sé frekar að beita þig andlegu ofbeldi heldur en hann sé með þunglyndi, ég er þó enginn sérfræðingur. Gangi þér vel.