Valerius hafði staðið nokkrum metrum frá Eriol og Þrym, og þegar Eriol byrjaði skyndilega að taka breytingum var hann snöggur að átta sig. Svo þetta var sá blóðbölvaði… Valerius dró litla silfurnál úr belti sínu, og með leifturviðbragði keyrði hann hana á kaf í öxl Eriols. Eriol, óviðbúin slíkum aðgerðum og enn undrandi eftir breytinguna, rak upp ómennskt öskur sem bergmálaði um gangana, en seig svo aftur saman í sitt venjulega form. En skrímslið bærðist ennþá í brjósti hans… Valerius hafði...