Mér finnst of gaman að nota tónlist til að skapa stemmingu þegar ég er að spila. Mér finnst yfirleitt besti kosturinn að nota kvikmyndatónlist, það var sérstaklega í uppáhaldi hjá mér að nota tónlistina úr Bram Stokers Dracula áður en fyrrverandi kærastan mín stal disknum (hún neitar því en ég veit hún er með hann og Frankie Goes to Hollywood líka). Að sjálfsögðu á kvikmyndatónlist ekki alltaf við og ég hef meðal annars notað Offspring og Nirvana til að skapa viðeigandi stemmingu.

Hvernig er þetta annars hjá ykkur þarna úti, notið þið tónlist undir? Hvaða tónlist og hvernig líkar ykkur það?
<A href="