því ég hélt maður ætti að fá að vita það og hlakkaði bara til, en svo fékk maður ekkert að vita það, þótt það sé ekki mikilvægt væri ég alveg til í að vita það.
mér fannst soldið asnalegt að Dumbledore notaði “bara” flugduftið til að komast þangað, en flott setningin, hefði ekki verið verra ef Voldemort hefði kastað einhverjum álögum að Harry og Dumbledore hefði bjargað honum og sagt þessa setningu..
já kannski, en ég bjóst við einhverju flottu, því bardaginn tók bara eina sekúndu, en ég hélt að hann myndi gera eitthvað svakalegt og ég varð ekki eins glaður því ég bara fattaði ekki strax að þetta var búið.. :/
mér fannst það einmitt ekki því var það ekki Dumbledore sem sagði honum að það væri hans einkenni að nota alltaf Expelliarmus og varaði hann við því að nota það of oft.
jam, mér fannst samt langmest grátlegast þegar Dobby dó, hann var bara allt í einu að deyja í fanginu á Harry þegar hann var nýbúinn að bjarga þeim öllum frá dauða. en ég grét samt ekki, bara hafa það á hreinu
En eini maður sem vitað er til að hafa opnað leyniklefann var Tom Marvolo Riddle, seinna betur þekktur sem Lord Voldemort Það er því að hann er erfingi Slytherin! og hann er ekki eini maðurinn sem hefur opnað Leyinklefann, Harry og Ron opnuðu hann…
Ég myndi segja að hún hafi verið að tala um að 2 aðalpersónur dóu, semsagt bara einhverjar 2 af þessum, þessvegna Hedwig og Dobby en svo líka nokkrar aðrar í viðbót: Lupin, Tonks, Harry, Voldemort, Fred, Snape.
já ég er þannig, og svo er ég alveg góður í ensku en stundum skil ég ekki hvar fólk er nákvæmlega, eins og hvar Harry var þegar Voldemort drap Snape og þannig.
mér finnst skrítið að sjá/lesa að fólk grét eða varð sorgmædd við dauða Snape, ég var bara mest að pæla í því af hverju Harry tók ekki sprotann af Voldemort þegar hann kom framhjá honum, hvar Harry var nákvæmlega og hvað þetta var sem kom úr augunum og sárunum á Snape.
hahah já. ég fattaði ekkert að hann ætti ekki að vera þarna, dáist að fólki sem fattar svona hluti sem skipta svo sem ekki miklu máli eins og að pæla í því að krakkar í hverju ‘Húsi’ eða heimavist passa ekki við tölur Rowling og þannig….
Ekkert um hvernig þau kláruðu námið & margt. Kláruðu þau nokkuð námið? Harry þarf þess allavega ekki, kann alveg nóg fyrst hann drap Voldemort(þótt hann hafi bara þurft ‘Expelliarmus’ sem mér fannst soldið cheep) og sagði ekki J.K. einhverntíma eða Dumbledore(lít á hann sem Rowling in a way) að hann þyrfti ekki að klára námið og fá góðar einkunnir til að vera skyggnir/Auror eða kannski hugsaði ég það bara.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..