Aaaw, mér finnst Snape vera svo mikið KRÚTT í minningunum sem hann lætur Harry fá! Ég er ekki að komast yfir það hvað þetta er sætt í raun og veru. Hann ætlaði að vera svo góður og segja Lily hvað hún væri en hún móðgaðist bara. Svo var hann yfir sig ástfanginn af henni en sagði aldrei eitt né neitt við hana. Ég get ekki ímyndað mér hvað honum hefur liðið illa að sjá James fá hana.

Ég var svo ánægð þegar þetta kom í ljós, en finnst fúlt hvað þetta var líkt einhverju fanfici. Talandi um fanfic, núna þegar það er vika síðan bókin er komin út eru komnir yfir 60 spunar, bara um Severus Snape og Lily Evans! (Ég pikkaði bara inn DH spoilers og leitaði að spunum með SS og LE og fékk 69 spuna) á fanfiction.net. Ég er ekki búin að athuga allar hinar síðurnar en það eru örugglega langt yfir 100 fic með þeim tvem núna!

En auðvitað þurfti dúllan að deyja. Ég fór að hágráta… vá, fyrir viku var ég lokuð inn í herbergi að lesa, meira en hálfnuð með bókina… en kannski hefði hann aldrei getað átt almennilegt líf í galdraheiminum. Hmmm. Þetta hljómar eins og efni í smá spuna… ^^

Æi, ég vil helst taka Snape og faðma hann, hann er svo mikið krútt!