Ég var að klára bókina núna rétt í þessu eftir eins og hálfs dags lestur. En það var ein spurning sem ég tók eftir að Rowling svaraði ekki og það var hvað Dudley sá þegar Vitsugurnar (Dementors) réðust á hann og Harry.

Annars var ég bara ánægður með bókina, fullt af actioni og nóg af dauðsföllum.

En já hverjar voru þessar tvær ‘aðal persónur’ sem dóu? Voru það Fred og Snape? Það voru alveg nokkrar persónur sem voru frekar stór partur af sögunni sem dóu, t.a.m. Lupin, Dobby og Tonks.