Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

schoolgirl
schoolgirl Notandi frá fornöld 4 stig

Re: Geggjaður ofnréttur

í Matargerð fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Girnilegur réttur, hvað er hann fyrir marga?

Re: SkinkuOstsHorn

í Matargerð fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Ekkert smá girnileg uppskrift, spurning hvort ég prófi þetta eitthvert kvöldið núna í vikunni. Er samt með eina spurningu, þú segir 100 gr smjör, er í lagi að nota smjörlíki eða er íslenskt smjör nauðsynlegt?

Re: Leynivinur

í Börnin okkar fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Ég held að þetta sé yfirleitt alveg saklaust og ekkert að óttast þó börn eigi svona leynivini. Litla systir mín átti t.d. svona leynivin sem hún lék við og talaði mjög mikið um. Hann var samt greinilega tilbúningur þar sem hann var í öllu sem gerðist í þjóðfélaginu og hún heyrði um, t.d. átti hann heima á Súðavík þegar snjóflóðið féll þar og öll systkini hans dóu nema hann og pabbi hans var á sjónum og þess vegna slapp hann líka. Svo þegar hún eltist þá fækkaði sögunum sem hún sagði af honum...

Re: leðurstígvél

í Tíska & útlit fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Ég á við svipað vandamál að stríða, nota skó númer 42. Reyndar get ég stundum notað skó númer 41 ef það eru stór númer. Það er alveg frekar pirrandi að passa í lítinn hluta af þeim skóm sem maður mátar!! Gleymdu því að máta x18 stígvélin þau eru alltaf pínulítil. Ég var búin að leita mikið að nógu stórum stígvélum en fann svo stígvél í skóbúðinni sem er í Miðbæ Hafnarfjarðar (reyndar soldið síðan). Þar var mikið úrval og ef ég man rétt passaði ég í allavega tvenn stígvél:) Mér finnst að það...

Re: Nice guys, why last?

í Rómantík fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Ég lennti nú einu sinni í því að eignast ágætan strákavin sem var einmitt svona nice guy eins og þú ert að lýsa. Svo tók hann upp á því að verða hrifinn af mér og lét mig vita það, var oft að gefa mér gjafir o.þ.h. Fyrst var það bara gaman að fá svona athygli en fljótlega fór það að vera þreytandi og nú má ég helst ekki heyra á þennan strák minnst. Samt vil ég ekkert fá endilega neinn bad guy sem særir. Kærastinn minn er til dæmis mjög góður, hrósar, hlustar o.s.frv. en er samt ekki of...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok