Já þetta er svolítið mikið þegar maður er að byrja,3500 félagsgjald, 1500 skráningarskírteini fyrir húsköttinn og 3300 sýningargjaldið. þar fyrir utan er gardínu og skrautkostnaður á búrinu sem fer eftir því hvað fólk vill leggja mikið í það og það er valið fallegasta búrið á hverri sýningarhelgi ;) En taka þetta í minni pörtum, gerast fyrst félagsmaður í kynjaköttum og taka þátt í starfinu þar t.d. á sýningum, skrá svo köttinn og þá er “bara” eftir sýningargjöldin ef það er farið á sýningar :)