Já þetta er neyðarkall því það vantar um 50 ketti á kattasýningu Kynjakatta annars verður henni aflýst. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu Kynjakatta og umsóknarfrestur er held ég til miðnætti annað kvöld(15.09.06)
Það er algjör synd ef við náum ekki að hafa tvær sýningarhelgar á ári og mjög slæmt fyrir kattaræktina hér.
Fjölmennum því með kettina okkar á sýningu tvisvar á ári og skemmtum okkur konunglega í því kattaríki sem þar er.