Mér finnst vanta mikið upp á það hjá mörgum að setja heimildaskrá með greinum sem þið skrifið. Samkvæmt lögum um heimildaskrá er það ritstuldur ef þið notið heimildir til að skrifa greinar en nefnið þær ekki. Auk þess er erfitt fyrir þá sem eru að lesa að dæma um það hvort greining sé uppspuni höfundar eða hvort þetta sé heimildaritgerð. Á öllum bókasöfnum er til bók sem heitir ,,handbók um ritun og frágang" eftir Ingibjörgu Axelsdóttur og Þórunni Blöndal og mæli ég með því að þið lesið þær...