Mér finnst vanta mikið upp á það hjá mörgum að setja heimildaskrá með greinum sem þið skrifið. Samkvæmt lögum um heimildaskrá er það ritstuldur ef þið notið heimildir til að skrifa greinar en nefnið þær ekki. Auk þess er erfitt fyrir þá sem eru að lesa að dæma um það hvort greining sé uppspuni höfundar eða hvort þetta sé heimildaritgerð.
Á öllum bókasöfnum er til bók sem heitir ,,handbók um ritun og frágang" eftir Ingibjörgu Axelsdóttur og Þórunni Blöndal og mæli ég með því að þið lesið þær og tileinkið ykkur þau vinnubrögð sem koma þar fram.
Ég veit að sum ykkar eruð enn í grunnskóla en þetta er hlutur sem ég mæli með að þið skoðið vel strax því að í framhaldsskóla og sérstaklega í háskóla er miskunalaust lækkað fyrir að vera ekki með fullnægjandi heimildaskrá.
Auk þess vil ég skora á stjórnendur á /hugi að setja það inn í reglur að samþykkja ekki greinar þar sem ekki er heimildaskrá, ef það er þá stefna að hér séu vandaðar greinar sem hægt er að taka mark á.
,,Always do sober what you said you´d do drunk. That will teach you to keep your mouth shut" -Ernest Hemmingway