Því miður er allt of mikið af lélegum tónlistarskólum. Ég hef kennt á gítar í tíu ár núna, jafnframt því að starfa sem tónlistarmaður. Einu sinni var það þannig að aðeins stærstu skólarnir í Reykjavík fengu niðurgreiðslu frá borginni. Svo fór einn minni skóli í mál við borgina því hann fékk ekki pening eins og hinir. Hann vann málið, svo borgin fór að borga öllum skólunum en því miður stækkaði kakan ekkert. Eftir stendur að það eru allt of margir skólar, með of marga skólastjóra. Sumir...