Jújú það er kanski hægt, en þegar þær þurfa að passa sig á grjótkasti úr öllum áttum þá getur það verið erfitt að fara inní þvöguna og snúa baki í fólk.
Það er mun hættulegra fyrir lögguna… og jafnvel fyrir mótmælendurna sjálfa. Það þarf fleiri en 1 löggu til að handtaka 1 einstakling svo að það séu lágmarkslíkur að einhver meiðist. 1 lögga er ekki að fara að handtaka 1 manneskju.
Hvernig í fjandanum ætlaru að efla lögregluliðið þarna? Lögreglan hefur átt í meiri kreppu en flestar starfstéttir á landinu, það hefur vantað fjármagn og mannafla í mörg ár og núverandi kreppa er ekki að bæta það. Lögreglan hefur staðið á 16 klukkutíma vöktum síðustu vikur. “Mér finnst það skiljanlegt að þeir beiti einhverju gegn þeim sem eru að henda í þá hnullungum,” -Lögreglan ætti semsagt að brjóta varnarveginn og hlaupa á eftir þeim sem eru að kasta í þá hnullungum? Og hvað svo? Þú...
En face it, mótmælendurnir voru búnir að vera að kasta eggjum og skyri í lögguna heillengi án þess að hún gerði eitthvað. Hún spreyjaði ekki piparúða eða kastaði táragassprengju útaf eggjum.
Vilt þú ekki bara leggja þennann vef niður? Það er hvort eð er búið að segja flest sem hefur komið hingað áður og það er hægt að leita að því á google.
Málið er að þetta var ekki svona og þetta er ekki svona á flestum stöðum. Ef að fólk hefur ekkert gáfulegt til að segja, þá sleppir það því… hérna virðist fólk knúið til að segja eitthvað þrátt fyrir að það hafi ekki hugmynd um hvað sé rétt. Það flykkjast bara fleiri og fleiri hálfvitar hingað inn.
Hvað skilgreinir þú sem væl? Ég nenni enganveginn að leiðrétt allar villurnar hérna inni. Pointið er, ef þið hafið ekkert að segja og ef þið vitið svarið ekki 100%, ekki svara.
hahaha ca. 10 ára gömul? … þau komu semsagt út árið 1999? Þessi sem gaurinn er með á myndinni eru eldri. Bætt við 13. janúar 2009 - 20:42 … komu um 1950…
Flott flott, ánægður með þetta, loksins eitthvað skemmtilegt að skoða inná þessum vef. Mér líkar reyndar alls ekki vel við “mango” stafina á www.mango.is … rosalega ofnotaður stíll, það eru til alltof margar alveg eins myndir.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..