Já, þeir voru svolítið Amerískir. En það má nú ekki taka það frá blessaða Kananum að mörg þeirra málefni eru merkileg (Eins og þetta með Borgarastríðið) og vel þess verðug að sé verið að semja eum þau. Annars hef ég alltaf staldrað við og hugsað þegar ég heyri sungið “Virgin Cain is my name”, Hlýtur ekki að vera að þetta sé tilvísun í Biblíun og Cain og Abel (Sem að Dylan, Costello og Springsteen hafa allir minnst á í textum sínum í gegnum tíðina)
Þetta er kannski ekki kjörinn tími fyrir skólafólk til að dæla inn efni, en samt, þetta er arfa slappt. Frekar slappur mórall hérna þessa dagana, aðallega tveir ungir piltar þó. 17 greinar hafa komið hingað inn síðan frá áramótum og 6 þeirra er um úrslit frá triviunni.
Engin umræða um þá hérna. Ég á einn best of disk með þessari sveit sem ég hlusta alltof sjaldan á. Hinsvegar hafa þeir stundum spilað með Meistara Bob Dylan, og Planet Waves frá '74 hefur verið stanslaust í spilarnum hjá mér og þar spilar The Band einmitt með Dylan. Glaðbærir Kanadabúar.
:/ Ég var frekar fúll þegar ég komst að því að Kerslake kæmi ekki til landsins og þá fór ég að vona að við fengjum að sjá kannski einhvern frægan í staðinn…en þessi er nú ekki með mjög glæsilegan feril, en örugglega er hann góður trymbill.
Æji, ég veit ekki:/ Afhverju vilja þeir sækja um aðild í Evrópusambandið? Finnst þetta frekar tilgerðarlegar áherslur, t.d. eins og þetta með umhverfismálin.
Já hann sagði þetta, en hann var í grín gírnum og var ekkert að reyna að særa Ringo og hann sagði líka að Ringo væri gífurlega mikilvægur fyrir hljómsvetina.
Tjaa, ég kaus Lennon. Svo má ekki gleyma magnaða textabrotinu úr laginu God á fyrstu sólóplötunni hans: I was the Walrus But now I'm John and so dear friends you'll just have to carry on The Dream is ove
samt trúi ég því ekki Þetta var kjánalega orðað hjá mér, en vonandi skilduru þetta. Annars var ég nú ekkert sérstaklega ap fiska eftir svari, bara kommenta á þetta. En það væri allveg fínt ef fólk sem væri á sama máli og ég mundi nefna það. Annars er þetta meira svona þrjóska en heimska í mér.
Jújú, ef drengirnir í Stones hefðu ekki sofið hjá óteljandi flottum gellum værum við ekki hérna að tala um þá! algjör staðreynd. Annars eru þetta tvær mjöög ólíkar sveitir og ég vil ekki bera þær saman. Annars er December's Children (And Everybody's) alltaf mín uppáhalds Stones plata :)
Ha, já, ég vissi það. En þú spurðir mig um fyrstu Kinks plötuna, ég veit ekkert um hana. Þú ert að lýsa “Lola versus Powerman and the Moneygoround, Part One”, ég kannast þónokkuð við hana, hún er mögnuð.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..