Ég er nú maður sem hefur gaman af moshi, og hef þar af leiðandi lent svolítið illa í þessu í gegnum tíðina. Versta atvikið var nú bara fyrir nokkrum vikum á útgáfutónleikum Severed Crotch. Þar var ég að mosha, og datt svo í hug að fara upp á svið. Þetta múv heppnaðist ekki betur en að ég datt aftur fyrir mig og lenti með bakið á einhverjum mónitor. Sjálfur man ég ekkert eftir þessu sökum ölvunar, en samkvæmt vitnum lá ég rotaður á gólfinu í ca. hálfa mínutu. Gat varla labbað í viku eftir þetta…