Ég skil ekki alveg hvað er svona hræðilegt við siði bandaríkjamanna að það má varla minnast á þá við sumt fólk og þá fer allt í háaloft. Hvað með það þótt að einhverjir kaupmenn græði pening á að selja súkkulaði og blóm… það er enginn að skylda einn né neinn til að kaupa einhvað sem hann vill ekki kaupa. Er ekki allt í lagi að hafa svona, því sem næst, alþjóðlegan dag elskenda? Ég sé bara ekkert af því og það skiptir mig engu hvaðan sá siður kemur. Alveg ótrúlegt hvað mörgum finnst allt vont...