Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

radical
radical Notandi frá fornöld 48 ára karlmaður
588 stig

Re: Félagslegt réttlæti

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 9 mánuðum
“Sko… það er notlega fátt skýrara en það að þú ert að ýkja þetta eins og þú mögulega getur, sem bendir enn og aftur til þess að þú hafir tileinkað þér skoðun áður en þú fórst að rökstyðja af einhverju viti. ” Ég er nú ekkert einn um það vinurinn. Kommúnistinn virkar ekki og mun ekki virka af því að fólk vill ekki láta stjórna sér. Þess vegna er rökrétt að það séu meiri líkur á því að kerfi þar sem fólk fær að stjórna sér virki. Þú ert greindur, ég ætla ekki að neita því, en farðu varlega í...

Re: LAN!!!!!!!!!!!!!!!

í Apple fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Er ekki hægt að starta mail lista fyrir áhugasama makka-leikja notendur.. færi kannski hægt af stað en fólkið kæmi fyrr eða síðar.. svona lagað spyrst nokkuð hratt út… Bara fá einhvern sem kann til að setja svoleiðis lista saman… potent

Re: Makki til sölu!!!

í Apple fyrir 24 árum, 9 mánuðum
hehe.. stigahóra!!! :D potent

Re: LAN!!!!!!!!!!!!!!!

í Apple fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Ég skal fara í það að tala við “my ppl” um að mæta á macLAN Á allt original Myth safnið og einng alla original Marathon leikina á CD Keypti líka UT fyrir stuttu… Það er enginn skortur á leikjum, það er nokkuð víst Ég skal taka þátt í að setja upp borð og stóla og þessháttar ef það vantar fólk í það… ég er hinsvegar ekki besti maðurinn í að ganga frá húsnæðismálunum… En það mætti athuga Bridge Húsið í mjóddini (er á hæðinni fyrir ofan keiluhöllina), það er víst vinsælt að halda lön þar, má...

Re: LAN!!!!!!!!!!!!!!!

í Apple fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Marathon er náttúrulega argasta snilld. Það er engin spurning.. spilað þá leiki endalaus í “den” Núna er það hinsvegar Unreal Tournament sem er að rokka feitt… potent

Re: Félagslegt réttlæti

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Ég er ekki að blekkja sjálfan mig þó þú haldir það. Ég sé ekki réttlætið í því að fólk sé neytt til þess að hjálpa, hvort sem það er ríkt eða fátækt. Ég geri mér fulla grein fyrir því hvernig samfélagi við lifum í dag. Ég veit að aðrir borguðu undir mína menntun og ég veit að aðrir hafa borgað fyrir mína heilsugæslu. Spurningin er: Þarf virkilega að skylda fólk til þess og er það siðferðislega rétt? Við erum sammála um það að það sé siðferðislega rangt að hjálpa ekki náunganum, að láta hann...

Re: Félagslegt réttlæti

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Enn og aftur. Það að það séu engir skattar þýðir ekki það sama og enginn hjálpi neinum. Alveg eins og að sígarettur séu seldar út í búð þá þýðir það ekki að allir kaupi þær. Segjum sem svo að ég væri fæddur öryrki. Gefur það mér réttinn til þess að taka peninga af þér, þótt það sé lítið? Segjum að ég væri fátækur (sem vill svo skemmtilega til að ég er), gefur það mér rétt á því að taka þína peninga? Ég er ekki að tala um að við látum fólk drepast út á götu. Við eigum að hjálpa þeim sem við...

Re: Makki til sölu!!!

í Apple fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Hef ekki hugmynd hvort RAMið passi í iMac. Það var ekki planið að selja vélina í bútum heldur sem heild. kv. potent

Re: Hvað er merki siðmenningar?

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 9 mánuðum
GaRuna. þú segir: “…við verðum að gera ráð fyrir hinum sem ekki vilja fylgja ráðum þínum eða geta það ekki einhverra hluta vegna.” Er þá réttlætanlegt að sá sem ekki vill bera ábyrgð á sér og vilji ekki vinna fyrir því sem hann vill að aðrir borgi það fyrir hann? Það er sjálfsagt að hjálpa öðrum, en það á ekki að skylda fólk til þess, fólk á að finna það hjá sér sjálfu og flestir sem lifa í raunvöruleikanum finna þá þörf. Vilja hjálpa. Þegar fólk er skyldugt til að borga skatta þá heldur það...

Re: Félagslegt réttlæti

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Það eru mjög margir möguleikar í stöðunni. Ég veit ekki um alla en ég veit að skattaálangning er ekki eina leiðin eins og sumir virðast halda. Og á meðan aðrar leiðir eru færar en að kúga fólk til hlýðni og til að taka ábyrgð ber okkur þá ekki siðferðisleg skylda til þess að fara þær leiðir? Eða er siðferði bara aukaatriði? Má vaða yfir rétt annara og nota það sem afsökun að öryggi fólks sé í hættu, þegar aðrar leiðir eru færar? Væri ágætt að fá svar við þessum spurningum frá þeim sem telja...

Re: Nýtt áhugamál??

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 9 mánuðum
hehe.. við höfum svoleiðis. Það heitir bara “Alþingi” en ekki “Spilling”. Mætti kannski búa til undirflokk sem innihledur Árna :D friður potent

Re: Félagslegt réttlæti

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Sæll Ritter Við erum ekki sammála um að skattar sé eina lausnin í stöðunni þó við séum sammála um margt annað :) Með tækni komar lausnir við ýmsum vandamálum, við getum verið sammála um það. Þó svo að fyrirtæki eigi vegina þá þýðir það ekki að fólk verði að stoppa á 10km millibili til að borga vegagjöld til fyrirtækisins. Bíllinn gæti þess vegna virkað eins og kreditkort og þegar honum er ekið í gegnum einhvað hlið þá dregst upphæð af reikning viðkomandi. Þetta er hugmynd sem ég fékk bara...

Re: Refsingar vegna umferðarlagabrota þyngdar

í Deiglan fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Ef einhvað þá myndi ég segja að það væri jákvæð þróun. Að foreldrar séu látnir bera ábyrgð á börnum sínum. Það ætti að vísu ekki að þurfa að _láta_ foreldra taka ábyrgð á sínum börnum með valdi. Fólk í dag hefur tilhneigingu umað kenna öllu öðru um en sjálfu sér. Ef einhver er drepin þá er það sjónvarpinu að kenna, eða tölvuleikjum. “Finnum blóraböggul” er mottó samfélagsins í dag. friður potent

Re: Félagslegt réttlæti

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Nei, ég vill ekki svoleiðis þjóðfélag. Og þú vilt það ekki heldur. Og ég held að enginn vilji þannig þjóðfélag. Vilt þú þjóðfélag þar sem þú ert skyldaður að gera “rétt”? Að taka rangar ákvarðanir sé ólöglegt? Að það séu ósýnilegir veggir útum allt þjóðfélagið af því að fólki finnst hitt og þetta óþæginlegt? Viltl þú þjóðfélag þar sem vandamálunum er sópað undir teppið? Vilt þú þjóðfélag sem virðir peninga meira en réttindi fólks? Vilt þú lifa í þannig samfélagi að ef þú getur ekki borgað...

Re: Félagslegt réttlæti

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Ég hef ekki orðið var við að skattar í Bandaríkjunum séu lágir. Getur rökstutt það að skattar í USA séu lágir? friður potent

Re: Félagslegt réttlæti

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Er semsagt ekki hægt að fá menntun eða heilbrigðisþjónustu nema að borga skatta? friður potent

Re: Félagslegt réttlæti

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Hver sagði að samhjálp væri vont fyrirbæri? Það er ekki vont fyrirbæri. Þjófnaður er það hinsvegar, það geta allir verið sammála um. Ef ég ræni 100.000 krónum af þér með valdi, kaupi sjónvarp fyrir þá peninga og “gef” þér það, þá er ég samt búinn að ræna þig. Gæti líka stolið 100.000 kalli af öllum og keypt sjónvarp fyrir alla.. samt væri ég að stela þessum peningum, þótt þú myndir kannski sætta þig við sjónvarpið þá gera það ekki allir… friður potent

Re: Áhugaleysi nútímafólks

í Heimspeki fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Það er búið að mata okkur svo lengi að við kunnum ekki að finna okkur mat sjálf. Ég á tvo ketti. Ég gef þeim að éta reglulega eins og maður á víst að gera þegar maður á gæludýr, stundum gleymir maður því og þá fær maður sko að heyra það. Það er mjálmað og gengið á eftir manni endalaust þangað til einhvað kemur í dallinn. Er þetta ekki bara orðir eins með okkur mennina? Ef við fáum ekki það sem við teljum okkur eiga rétt á þá förum við og “vælum” í fólki yfir “óréttlætinu” í stað þess að...

Re: Refsingar vegna umferðarlagabrota þyngdar

í Deiglan fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Ég nefndi þetta bara sem dæmi um hvernig það að oft eru sett lög sem eiga að leysa einhvað vandamál án þess að það þurfa að taka á því. Og þetta dæmi er mjög gott dæmi um hvernig margir stjórnendur landsins hugsa hlutina. Setjum bara lög og sóðum vandamálinu undir teppi. Þvingum fólk til að sýna ábyrgð. Hræðum fólk til að gera rétt og sleppum algerlega að taka á raunvörulega vandamálinu. Það gæti kannski tekið einhvern tíma í að komast að því hvað vandamálið er, en þeir reyna ekki einu sinni...

Re: Hvað er merki siðmenningar?

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Ég er einmitt að benda á slíka leið. Leið sem tekur á vandamálunum í stað þess að sópa þeim undir teppið eins og gert er í dag. Ég myndi ekki segja að þetta væri einföldun því málið er ekki eins flókið og fólk heldur. Ég er ekki að tala um samfélag án reglna þar sem fólk gerir bara það sem því dettur í hug. Munurinn á mér og þeim sem ekki fara eftir þessum grunnreglum er að telja það allt í lagi að fórna mínu frelsi í annara þágu. Afhverju eru allir fastir á því að ef við lifum í samfélagi...

Re: Hvað er merki siðmenningar?

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Ég er ekki alveg að skilja hvað þú ert að fara… hvað hugsar þú um þegar þú hugsar um frelsi? Hvernig túlkar þú það orð? Hver telur þú mörk frelsisins ættu að vera? Það eru mörk á frelsinu og þau liggja í því að þú mátt ekki skaða aðra því þá ertu að hefta frelsi annara. Samfara frelsi fylgir ábyrgð. Því meira frelsi því meiri ábyrgð. Ábyrgð foreldra er að kenna börnum sínum almenna kurteisi, umburðarlyndi og sjálstæða hugsun, og reyndar margt fleira. Það verða reglur og lög í svona...

Re: LAN!!!!!!!!!!!!!!!

í Apple fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Gæti líklega reynt að fá einhvað af mínum gömlu macLAN félögum til að sýna þessu áhuga. Við vorum 6-8 yfirleitt og allir á makka. Held að enginn af þeim stundi Huga neitt af ráði, nema NuJack. kv. potent

Re: LAN!!!!!!!!!!!!!!!

í Apple fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Ég spila Unreal Tournament og Diablo 2. Væri líka gaman að spila Myth eða einhvað svoleiðis. Ég er game, bara hvar og hvenær? kv, potent

Re: Refsingar vegna umferðarlagabrota þyngdar

í Deiglan fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Biðst afökunar á þessu kommenti, það átti ekki rétt á sér. Var bara illa upp lagður þegar ég las þetta, finnst þetta mjög röng aðferð til að leysa vandamálin. Eins og fram hefur komið hér á huga eru sumir sem ætla sér ekki að aka hægar, ætla bara að fá sér radarvara og þessháttar til að vita þegar lögreglan er að mæla. Margir hægja eflaust einhvað á sér, en vandamálið verður til staðar samt sem áður. Fyrst það er verið að hækka sektirnar á annað borð, afhverju ekki bara hækka þær upp í...

Re: Ástand mi?bæjarins

í Deiglan fyrir 24 árum, 9 mánuðum
hehe Gott að við erum sammála um þessi atriði. Það að grípa til þess að loka stöðunum klukkan einhvað er ekki lausnin. Launsin er líklega að reyna að stuðla að dreifingu skemmtistaða um höfuðborgar svæðið. Getum byrjað sjálfir á því að reyna að leysa þetta vandamál með því að stunda sjálifr staði sem eru ekki niður í miðbæ og reyna að fá okkar vini með okkur. Búa til kjarna annarsstaðar… friður potent
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok