Það var dag einn er ég sá´ann, hann var klæddur í íþróttabuxur og stuttermabol. Hann leit til mín og sagði hæ og ég sem var með hjartað í buxunum náði þó að drulla upp úr mér hæ-i á móti. Ég var fljót að strunsa inn á klósett til að jafna mig, ég leit í spegil og myndin var hræðileg, ég var alrauð í framan og ef ég hefði verið borin saman við epli þá hefði ég vinningin. Það var tveim kvöldum áður sem ég hafði talað við´ann í sms-i og hann tók þessu barasta vel og sagðist alveg vita hver ég...