Það að djamma og djúsa er eitt að því sem unglingar eru mjög lagnir við að gera. hver þekkir ekki það að vakna á laugadegi/sunnudegi og vera með geðveika timburmenn?! … ég þekki þetta ekki, ég kýs að skemmta mér edrú og það er mjög fínt að muna eftir öllu sem gerðist kvöldinu áður og gott að vita af því að maður hafi ekki gert neitt sem maður sér svo eftir seinna meir.
Jú, auðvitað hef ég smakkað áfengi en aldrei í því magni að ég hafi orðið full, mér finnst það bara algjör óþarfi að vera niðrí bæ um helgar.. algjörlega á rassgGATINU.
ég vil því bara benda þeim krökkum sem eru að hugsa sig um að láta undan vinunum og að detta í það með þeim að hugsa sig tvisvar um áður en þeir segja JÁ og spyrja sjálfa sig að því hvað þeir græða á því að detta í það.