Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

pazzini
pazzini Notandi síðan fyrir 19 árum, 4 mánuðum 31 ára karlmaður
842 stig

Hreinar, stórar og litlar (39 álit)

í Hljóðfæri fyrir 18 árum
Ég er að spá í að fara beint yfir í próf í öðru stigi í tónfræði (er í fyrsta) en ég þarf að skilja allt í bókinni sem við erum í. Ég skil allt nema þessar einundir, tvíundir, þríundir, fjórundir, fimmundir, sexundir o.s.frv. Það er að segja hvort þær séu hreinar, litlar eða stórar. Þegar tónfræðikennarinn fór yfir þetta með okkur þá skildi ég þetta nokkurnveginn en gleymdi því svo bara og hef ekki skilið þetta síðan! Þetta er útskýrt svo asnalega í bókinni en er hugsanlegt að eitthver vilji...

Nachos í Kringlubíó! (27 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum
Jæja, nú verð ég að nöldra. Ég var í bíó í gær í kringlunni og keypti mér lítið Nachos á 400 kall. Ég var svo heltekinn af myndinni að ég fattaði ekki hvað þetta var ógeðslega vont. Svo þegar ég kom heim fékk ég alveg ömurlegan magaverk þannig að ég lagst uppí rúm. Svo ropaði ég og þau gaus upp í munninn á mér eitthvað ógeðs bragð af helvítis snakkinu sem ég át fyrir 2 klukkutímum og ég hefði getað ælt. Svo sofnaði ég og daginn eftir fór ég í skólann og á leiðinni í hann ropaði ég aftur og...

Kenía! (7 álit)

í Háhraði fyrir 18 árum
http://hugi.is/hahradi/bigboxes.php?box_id=51208&f_id=1027 Af hverju er þetta ekki með fleiri en 2 stjörnur? Ég grenjaði úr hlátri!

Napalm Death (8 álit)

í Metall fyrir 18 árum
Djöfull eru þeir með nett riff í laginu sem er á linknum hér fyrir neðan. Verð að kynna mér þá en spurningin er hvaða lögum á ég að byrja á? Pazzini

Myndbönd? (58 álit)

í Hljóðfæri fyrir 18 árum
Eigiði eitthver myndbönd af ykkur? Tja.. mér leiðist. En ég er með eitt í undirskriftinni (ýtið á End of passion play), það er bara svo langt á eftir hljóðið:S En allavega ef þið eigið eitthvað þá væri skemmtilegt að sjá það! Pazzini

Lög/Diskar með Death (11 álit)

í Metall fyrir 18 árum
Hvaða lög/diskar með Death eru best/bestir. Ég prófaði að gúggla og líka leita hér á huga en það kom ekkert. Pazzini

@????.com (15 álit)

í Hugi fyrir 18 árum
Hvernig bý ég til netfang sem er ekki @hotmail.com?? Skiptir engu máli hvað bara eitthvað!!

iPod (16 álit)

í Hugi fyrir 18 árum
Ég er með iPod nano og ég byrjaði bara á því að setja lög á hann úr iTunes. En það var þannig að lögin í iTunes hjá mér eru 6GB en iPod-inn tekur bara 4GB svo að talvan tekur bara sjálf eitthver lög út. Ég sé það og fer þá aftur í iTunes og ætla að velja mér sjálfur eitthver lög og þegar ég er búinn að vera í u.þ.b. klukkutíma að setja inn lög og delete-a eitthverjum út af gamla playlist-anum þá tengi ég iPodin við tölvuna en þá segir hún að það sé ekki meira pláss. Hún heldur þá að hún eigi...

Down (17 álit)

í Metall fyrir 18 árum
Sæl. Hvaða diska með Down ætti ég að kaupa mér? Nola eða Down II? Ég gæti alveg keypt báða líka en ég vildi vita frá ykkur hvor er betri. Pazzini

Ramones gaurarnir (6 álit)

í Gullöldin fyrir 18 árum
Hvernig dóu þeir? Það stendur ekkert í R.I.P dálknum

Kerrang plays tribute to Metallica (34 álit)

í Metall fyrir 18 árum, 1 mánuði
Þetta er kannski ekki það nýjasta en ég ákvað að senda þetta inn.. Þið fattið vonandi hvað þetta er (titill) en það er diskurinn Master of Puppets sem verið er að tala um! Svona myndi þetta líta út Machine Head - “Battery” Trivium - “Master Of Puppets” Mendeed - “The Thing That Should Not Be” Bullet For My Valentine - “Welcome Home (Sanitarium)” Chimaira - “Disposable Heroes” Fightstar - “Leper Messiah” Mastodon - “Orion” Funeral For A Friend - “Damage, Inc.” Pazzini

Cm 03/04 Landslið (1 álit)

í Manager leikir fyrir 18 árum, 1 mánuði
Er hægt að sjá eitthversstaðar hvaða landslið eru laus? Og líka, ef maður tekur við landsliði þarf maður þá að hætta að þjálfa liðið sem maður var að þjálfa?

F&@% (59 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 1 mánuði
Andskotinn sjálfur! Nú þegar ég kom heim sögðu mamma og pabbi mér að ég þyrfti að eyða LimeWire ekki útaf vírusum.. nei ekki útaf plássi á tölvunni heldur útaf eitthverju helvítis ÁTAKI!! sem eitthver 10 lönd eru í og aumingja Ísland þurfti að vera með. Hljómsveitir heimtuðu þetta eða eitthvað svoleiðis en mér finnst að þær ættu að vera bara ánægðar! Ég hef kynnst helmingnum af allri tónlist sem ég hlusta á, á LimeWire. Ég ætti svona 10 diska ef LimeWire væri ekki til. Maður kynnir sér...

Training (0 álit)

í Manager leikir fyrir 18 árum, 1 mánuði
Þegar maður er í bara “Squad” í CM 03/04 þá er neðst og næstlengst til vinstri svona “Training” Svo er hægt að velja hvernig æfingarnar verða en hér kemur spurningin, hvað á maður að haka við þegar maður vill láta þá æfa þolið?

100 Greatest Guitar Solos (5 álit)

í Gullöldin fyrir 18 árum, 1 mánuði
Er til plata? Ég hélt þetta væri bara til á netinu.. þ.e.a.s DC++ og þannig

Indie (28 álit)

í Rokk fyrir 18 árum, 1 mánuði
Sorry, ég fatta þetta ekki. Mér finnst þetta alleiðinlegasta rokkið og ætti frekar að vera popp. Söngvarinn/Gítarleikarinn í hljómsveitinni er jakobínarínafan. Áður var hann ALLTAF að hlusta á metal og hefði núna verið kominn inní deathmetal sem er gott því þá væri mikið léttara fyrir okkur að gera lög (Erum að spila Thrash Metal og má aldrei vera of mikið Thrash Metal útaf honum:/) ef þetta helvítis indie hefði ekki komist inní heiminn. Varð að koma þessu frá mér Pazzini

Follow The Reaper - Children of Bodom (21 álit)

í Metall fyrir 18 árum, 1 mánuði
Jæja, nú er ég búinn að vera síðustu þrjár vikur eða svo að tékka hjá valda og skífunni (væri samt varla til í að borga 3000 kall fyrir hann sem er líklegt verð hjá þeim) og ég finn ekki þennann disk! Veit eitthver hérna hvar ég gæti fengið hann? Pazzini

Tónlistarmaður vikunar (4 álit)

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 1 mánuði
Eitt stórt klapp fyrir Morgoth *klapp*

Digitech Death Metal? (13 álit)

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 1 mánuði
Var að spá í [url= http://www.pulseonline.com/digitech/DeathMetal.jpg]þessum Er hann eitthvað góður? Sá hann í gítarblaði sem ég á ásamt fleirum digitech pedölum en þessi var með mesta disortion-ið. Og eitt en.. heitir hann bara Digitech Death Metal eða? Pazzini

Get ekki fengið mann lánaðan (10 álit)

í Manager leikir fyrir 18 árum, 1 mánuði
Ég spila CM 03/04 og leikmaður sem heitir Matteo Brighi er í varaliði Juventus og stendur í Information “This player is available for loan” og ég prófa að gera “Make Offer” og þá er ekki hægt að fara í Loan og ekki heldur í Co-ownership, það er svona grátt og ekki hægt að ýta á það Veit eitthver hvað er að?

Hugmynd (7 álit)

í Metall fyrir 18 árum, 1 mánuði
Hvernig væri bara að gera töflu eitthverstaðar hérna um tímana hjá Valda. Hvenær hann er lokaður og allt það. Ef stjórnendur nenna því ekki þá gæti ég þess vegna gert það bara, eða eitthver annar sem er fær á Word:)

Þolþjálfun (4 álit)

í Manager leikir fyrir 18 árum, 1 mánuði
Ég þarf að fá að vita hvernig maður lætur eitthvern aðstoðarþjálfara eða eitthvað þjálfa sérstaklega þolið í leikmönnunum. Ég spila CM 03/04 og leikmennirnir eru alltaf komnir niðrí svona 75 í hálfleik! Og ef maður ætlar að ráða eitthvern hvern á maður þá að ráða? Coach eða Assistant Manager eða eitthvað annað… Pazzini

Myndir með greinum (11 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 1 mánuði
Hvernig væri að það væri hægt að setja fleiri en eina mynd hjá grein? Þá væri kannski Mynd 1 [Browse] Mynd 2 [Browse] Mynd 3 [Browse] Mynd 4 [Browse] Og svo væri það þannig að Mynd 1 færi efst í hægra hornið, Mynd 2 færi neðst í vinstra eða eitthvað svoleiðis… Greinin væri auðvitað mikið snyrtilegri þannig:)

Desktop-Vandamál (6 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Já nú er það orðið þannig að Desktopið og það allt er orðið stærra en skjárinn sjálfur og komið út fyrir hann.. Ég þarf alltaf að fara með músina lengst til hliðar til að sjá lengra.. Veit eitthver hvað ég get gert??

Vefsíðu stuff? (5 álit)

í Vefsíðugerð fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Veit eitthver hvernig maður getur sett músik inná síðuna? Helst þannig að það er kóði og manneskjan getur gert svona on/off þegar hún er á síðunni:P Og eitt enn, er til eitthver síða sem er með fullt af svona aukadóti fyrir bloggsíður (er með blog.central)? Pazzini
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok