Jæja, nú verð ég að nöldra.

Ég var í bíó í gær í kringlunni og keypti mér lítið Nachos á 400 kall. Ég var svo heltekinn af myndinni að ég fattaði ekki hvað þetta var ógeðslega vont. Svo þegar ég kom heim fékk ég alveg ömurlegan magaverk þannig að ég lagst uppí rúm.

Svo ropaði ég og þau gaus upp í munninn á mér eitthvað ógeðs bragð af helvítis snakkinu sem ég át fyrir 2 klukkutímum og ég hefði getað ælt. Svo sofnaði ég og daginn eftir fór ég í skólann og á leiðinni í hann ropaði ég aftur og þá gaus þetta bragð aftur upp og kom þetta viðbjóðslega bragð af Nachos-inu í Kringlubíó og ég fékk hroll og kúgaðist.
Ég fékk að fara heim eftir 1 tíma og er búinn að liggja uppí rúmi með magaverk og af og til búinn að fá hroll og kúgast útaf ógeðslegu Nachos-i.

Tilgangurinn með þessum korki er s.s.

Ekki éta Nachos-ið í Kringlubíó, það er ógeðslegt og eyðileggur á þér mallakútinn.

Ég fer og kvarta seinna.