Ég er sammála Kiddo. Flæktu þeirri gömlu inn á þennan hátt eða tríttlaðu bara inn einhvern daginn með einn í fanginu. Má vera að allt smelli saman. Sjálfur notaði ég þessa aðferð þegar ég náði mér í Kaffon minn, sem reyndar var fullvaxinn þegar hann kom hingað til okkar. Áður hafði ég haft hunda en ekki nokkuð lengi áður en þetta gæludýr kom hér inn á gólf. Síðan hefur þessi Golden Retriver verið “prinsinn” á heimilinu. Það væri hann hins vegar ekki ef að ég hefði haldið áfram að tala um að...