Hvar ertu Maggi minn! Hvernig get ég eitthvern vegin sannfært mömmu mína um það að ég hafi gott að því að fá mér hund. Mig er búið að dreyma um Svartan Labrador í ég veit ekki hvað mörg ár!
Upphaflega átti greyið að heita Ottó en þar sem ég sá fram á að ég væri ekkert á leiðini að fá hund þá ákvað ég að leyfa kisulingnum minum að fá nafnið, þar sem mér hefur alltaf fundist það mjög flott og vildi ekki tapa því.
En ég iða bara enn í skinninu á að fá mér hund. Um leið og ég næ að sannfæra mömmu mína eða þá flyt þá mun ég fá mér einn og nefna hann Magnús. Ekki veit ég afhverju, þetta bara passar svo við hann.
Þið verðið að hjálpa mér.. Hvað get ég notað á hana móður mína!?
Það er alveg tilganslaust fyrir mig að lofa að taka til í langan tíma, ég hef reynt það nokkrum sinnum..
I need help!