Mitt bretti er einmitt nákvæmlega eins og þitt. ég ætla reyndar á næstunni að byggja mér tveggja hæða flykki þarsem allt rafmagnsdótið verður undir hæðinni… mitt bretti er nú þegar ansi lítið. annars er ég bara með einhverja hillu úr herberginu mínu, og svo teppi utan um hana, límdi þetta með bara venjulegu lími, og negldi svo litlum nöglum undir hana og svo franskan rennilás á effectana. þetta er ansi hentugt… mitt bretti kostaði held ég 400kr. reyndar fékk ég teppið frítt.