Noise halda útgáfutónleika í tilefni útkomu plötunnar Pretty Ugly á Gauk á stöng annað kvöld, þriðjudagskvöldið 25.nóvember. Platan verður spiluð í heild sinni auk þess sem noise munu eflaust taka nokkur glæný lög. Lokbrá sjá um upphitun. Húsið opnar kl.22:00. Frítt inn!
Þess má til gamans geta að platan verður til sölu á staðnum á sérstöku tilboðsverði.