Bróðir minn keypti Nintendo Wii í Kanada og hann virkar fínt, hann er tengdur í straumbreyti og allt í gúddí, eeen, skjámyndin er alltaf svarthvít. Við höfum eitthvað verið að spyrjast fyrir í Ormsson, umboðsaðila Nintendo á Íslandi, og þar fengum við það svar að þetta væri líklega útaf því að litakerfin pössuðu ekki, NTSC leikjatölva í PAL sjónvarpi. Þar að auki er sjónvarpið orðið rúmlega 10 ára gamalt. Er eina lausnin að fá sér sjónvarp sem virkar með NTSC kerfi eða erum við bara föst með...