Ég er sammála því að Felidae sé vel þess virði að lesa hana, en þó fannst mér ,,sakamálið" sem Francis er að reyna að leysa ekki mjög spennandi sem slíkt. Það sem mér fannst aftur á móti ánægjulegt við bókina eru lýsingar Francis á eiganda sínum, misheppnuðum, einhleypum og of feitum rithöfundi sem skrifar í kvennablöð en dreymir um að fá útgefnar fræðibækur sínar, en hefur þann slæma ávana að festast um of í smáatriðum og gerir fræðiverk sín þannig ólesanleg með öllu. Lýsingar kattarins á...