Heyrðu ég hef alveg lent í þessu, eins og flestar stelpur á þínum aldri mundi ég halda. Stelpur eru bara svona. Átti 2 ‘bestu vinkonur’ í 7unda bekk. Allt í einu fóru þær 2 að vera alltaf saman, mér aldrei boðið að vera með og voru alltaf eins og bara það að ég væri í herberginu færi rosalega í pirrurnar á þeim. Mér leið illa í þónokkuð langan tíma. Þorði ómögulega að fara að eignast nýja vini, enda bara 12 ára feimin pjakkur ;) Svo líka voru þetta vinkonur mínar þrátt fyrir allt, maður vill...