Ég er á því að framhjáhöld eigi sér ekki stað nema að eitthvað sé að í sambandinu sem viðkomandi er í. Þar með er ég EKKI að segja að framhjáhöld séu í lagi (bara svona til að minnka líkurnar á því að þið munið hrauna yfir mig hérna!) Það er hægt að skilja ákveðna hegðun, eða að minnsta kosti ástæðurnar sem liggja að baki, án þess að samþykkja hana. Ég á bágt með að trúa því að neinn verði skotinn í/sofi hjá einhverjum utanaðkomandi ef hann er ástanginn og lukkulegur í sínu eigin sambandi....